Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

65. fundur
21. ágúst 2024 kl. 18:30 - 19:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson varamaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir framkvæmdarstjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur 2023 - Leiguíbúðir
Málsnúmer 202407068
Farið yfir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses.fyrir árið 2023, sem unninn er af KPMG ehf. Tap varð á rekstri félagsins að fjárhæð kr. 10.838.988.- samkvæmt rekstarreikningi.
Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir ársreikninginn samhljóða með 3 atkvæðum og staðfestir hann með undirritun sinni.
2.
Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
Málsnúmer 202408045
Lagt fram yfirlit yfir rauntölur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. fyrir árin 2022 og 2023 og fjárhagsáætlun ársins 2025 - 2028.
Farið var yfir fjárhagsáætlun ársins 2025 og þriggja ára áætlun 2025-2027. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
3.
Ársfundur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 2024
Málsnúmer 202408006
Til umræðu ársfundur félagsins og boðun hans. Ársfundur hefur verið boðaður þann 27.ágúst 2024, kl. 17:00 og verður hann haldinn á 3.hæð Ráðhúss Dalvíkur í Upsa. Fundurinn var boðaður þann 9.ágúst og með fundarboði fylgdi eftirfarandi: Dagskrá fundar, Ársreikningur 2023, Rekstur hússjóðs 2023 og fundargerð ársfundar 2023.Þann 16.ágúst sl. var fjárhagsáætlun áranna 2025 - 2028 send fundarmönnum ásamt tillögu að fjárhæð leigu ársins 2025.
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að boða til ársfundar Leiguíbúða Dalvíkurbyggða hses., þann 27.ágúst nk., kl. 17.
4.
Skráning rafrænna leigusamninga í Húsnæðisgrunn HMS
Málsnúmer 202404113
Þann 1.janúar 2023 tóku breytt húsaleigulög gildi (nr. 36/1994) sem höfðu bandormsáhrif á önnur lög. Má þar helst nefna lög um tekjuskatt (nr. 90/2003) og lög um húsnæðisbætur (nr. 75/2016). Stærsta breytingin snéri að skyldu leigusala sem leigja út fleiri en tvær íbúðir, um að skrá húsaleigusamning um íbúðarhúsnæði í húsnæðisgrunn HMS. Þessi breyting á einnig við um sveitarfélög og félög þeim tengdum.Þar sem leigusamningar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses., runnu út þann 1.apríl sl., voru nýir samningar skráðir rafrænt í MyIgloo/Leiguskjól. Þar með hefur félagið uppfyllt breytt húsaleigulög.
Lagt fram til kynninga.
5.
HMS eftirlit og upplýsingaskylda eigenda almennra íbúða skv. lögum.
Málsnúmer 202405031
Tekið fyrir erindi frá HMS frá því í maí sl. um er að ræða árlegt eftirlit HMS og óskar stofnunin eftir að fá eftirtalin gögn send:Staðfestan ársreikning fyrir 2023, ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðenda ogupplýsingum um hvenær ársreikningurinn var samþykktur.Skýrslu um rekstur þar sem fjallað er um kaup og byggingu almennu íbúðanna, úthlutunþeirra og tekjuviðmið, ákvörðun leigufjárhæðar, notkun og fjármögnun almennu íbúðanna.Almennt skal miðað við að greinargerðin sé ekki lengri en 2-3 bls. að undanskildumfylgigögnum.Gildandi samþykktir, reglur eða upplýsingar/önnur gögn sem stofnframlagshafi telur rétt aðleggja fram vegna erindis þessa.Upplýsingar um tengilið við HMS vegna stofnframlaga. Framkvæmdarstjóri Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses., upplýsti, 6.maí sl., HMS um að öll gögn verði send stofnuninni að loknum ársfundi félagsins.
Lagt fram til kynningar.
6.
Breytingar á húsaleigulögum 1.september 2024
Málsnúmer 202408043
Þann 1. september næstkomandi taka gildi breytingar á húsaleigulögum. Mikilvægt er fyrir leigusala að kynna sér efni þessara breytinga. Með fundarboði fylgdi yfirferð HMS, yfir helstu atriði þessara breytinga.
Lagt fram til kynningar.
7.
Lokastígur 3, dyrabjöllur
Málsnúmer 202406016
Dyrabjöllur hafa ekki verið að virka sem skyldi. Starfsmaður Eigna- og framkvæmdadeildar ætlar að fá Rafeyri sem sá um uppsetningu þeirra til þess að fara yfir þær.
Lagt fram til kynningar.
8.
Slökkvitæki í Lokastíg
Málsnúmer 202403109
Slökkvitæki í Lokastíg voru yfirfarin af Securitas í apríl.
Framkvæmdarstjóra er falið að óska eftir því við Securitas að þeir yfirfari slökkvitæki einu sinni ári. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
9.
Loftræstikerfi Lokastíg
Málsnúmer 202408054
Það er kominn tími á yfirferð loftræstikerfis í Lokastíg. Beiðni hefur verið send á Eigna- og framkvæmdadeild, starfsmaður ætlar að athuga merkingar á loftræstikerfinu og meta hvaða leið sé best að fara í þessu.
Framkvæmdarstjóra og formanni stjórnar falið að gera þjónustusamning vegna viðhalds loftræstikerfa í Lokastíg. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.