Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
64. fundur
18. september 2023
kl.
17:00
-
18:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur 2022 og endurskoðun
Farið yfir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. sem unninn er af KPMG ehf. Tap varð á rekstri félagsins á árinu 2022 að fjárhæð kr. 12.591.000.- samkvæmt rekstrarreikningi.
Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir ársreikninginn samhljóða með 3 atkvæðum og staðfestir hann með undirritun sinni.
2.
Fjárhagsáætlun Leiguíbúða DB 2023
Lagt fram yfirlit yfir bókfærða stöðu Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. í samanburði við fjárhagsáætlun ársins, dags. 7.september 2023.
Lagt fram til kynningar.
3.
Ársfundur Leiguíbúðar Dalvíkurbyggðar hses 2023
Til umræðu ársfundur félagsins og boðun hans. Fyrir liggur svohljóðandi tillaga formanns félagsins um breytingu á 6.gr. samþykkta Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses:Ársfundur skal haldinn fyrir lok október ár hvert.
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að boða til ársfundar Leiguíbúðanna þann 9.10.2023 kl. 17, staðsetning.
Auglýsing um ársfund samkvæmt samþykktum félagsins verði send fulltrúaráði skriflega í síðasta lagi 25.9.2023. Tillaga formanns um breytingu á 6.gr. samþykkta félagsins skal auglýsa í fundarboði ásamt því að kalla eftir tillögum um breytingar á samþykktum og/eða öðrum tillögum ársfundar. Eftirfarandi gögn fylgi fundarboði: Ársreikningur 2022, fundargerðir stjórnar frá síðasta ársfundi og fjárhagsáætlun næsta árs.

4.
Fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Farið var yfir fjárhagsáætlun ársins 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027. Stjórn óskar eftir að framsetning áætlunar verði samræmd við framsetningu ársreiknings til þess að auðvelda samanburð. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
5.
Samningur við Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi drög að þjónustusamning með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
6.
HMS og upplýsingaskylda eigenda almennra íbúða skv. lögum.
Lagt fram til kynningar.