Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
6. fundur
28. mars 2018
kl.
12:30
-
13:51
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda; hönnunarsamningur
Undir þessum lið kom á fundinn Eyrún Rafnsdóttir, sviðstjóri félagsmálasviðs, kl. 12:30.Á 4. fundi stjórna Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund félagsins Ágúst Hafsteinsson, frá Form ráðgjöf ehf., og Eyrún Rafnsdóttir, sviðstjóri félagsmálasviðs. Á 3. fundi stjórnar þann 2. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað: "Á áætlun er að byggja 7 íbúðir fyrir fatlað fólk í Dalvíkurbyggð. Samkvæmt bréfi frá Íbúðalánasjóði, dagsett þann 26. september 2017, liggur fyrir samþykki á stofnframlagi að upphæð kr. 56.410.248 til að byggja alls 7 íbúða búsetukjarna fyrir fatlaða. Til umræðu fyrstu skref hvað varðar m.a. hönnun á húsnæðinu. Lagt fram til kynningar." Til umræðu ofangreint. Ágúst vék af fundi kl. 12:09. Eyrún vék af fundi kl. 12:19.Berki Þór falið að afla upplýsinga á milli funda í samræmi við umræður á fundinum."Með fundarboði stjórnar fylgdi drög að hönnunarforsendum við Ágúst Hafsteinsson, Arkitektastofnunni Form.Til umræðu ofangreint.Eyrún vék af fundi kl.13:38
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses felur sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að hafa samband við Ágúst Hafsteinsson og koma á framfæri þeim ábendingum sem fram komu á fundinum um hönnunarforsendum og drög að teikningum.
2.
Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses - stofnun; samningur við Íbúðalánasjóð
Á 5. fundi stjórnar þann 28. febrúar 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:"Með fundarboði fylgdi drög frá Íbúðalánasjóði að samningi um stofnframlag á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016 til byggingar á 7 íbúða búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga, við Lokastíg 3 á Dalvík, sem og drög að yfirlýsingum um kvöð. Á fundinum var farið yfir ofangreind drög.Stjórn LD hses gerir ekki athugasemdir við meðfylgjandi drög frá Íbúðalánasjóði."Með fundarboði fylgdu endanleg drög að samningi við Íbúðalánasjóð um stofnframlag á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016 til byggingar 7 íbúða búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga, við Lokastíg 3 á Dalvík ásamt yfirlýsingu um kvöð.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samning við Íbúðalánasjóð um stofnframlag ásamt yfirlýsingu kvöð, sbr. ofangreint, og felur framkvæmdastjóra að undirrita fyrir hönd Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses.