Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
59. fundur
24. nóvember 2021
kl.
15:30
-
16:20
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Beiðni um skuldbreytingu
Fyrir stjórn liggur að samþykkja og undirrita lánssamning við Dalvíkurbyggð skv. samþykkt stjórnar frá síðasta fundi. Um er að ræða 5 milljóna króna lán til 13 ára. Vextir eru 1,02%, fastir árlegir vextir. Grunnvísitala neysluverðs er 505,80 stig m.v. október 2021. Lánssamningurinn hefur verið samþykktur í sveitarstjórn.
Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi lánssamning við Dalvíkurbyggð og felur framkvæmdastjóra að undirrita samninginn fyrir hönd félagsins.
2.
Lokastígur - staða mála
Undir þessum lið var til skoðunar fjárhagsstaða Leiguíbúðanna m.v. nóv. 2021 og þær ábendingar sem borist hafa stjórn frá íbúum.
Stjórnin samþykkir samhljóða að leitað verði til pípara vegna kostnaðar við upphitun og athugasemda varðandi hitastýringu. Einnig samþykkt að fá aðila til að yfirfara slökkvitæki og reykskynjara ásamt því að íbúar og starfsfólk fái kynningu á notkun slökkvitækja. Þá verði farið yfir hurðamál með verktaka, Kötlu ehf.