Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
58. fundur
23. júlí 2021
kl.
10:45
-
11:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur 2020, ársfundur o.fl. gögn
a) Farið yfir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses sem er unninn af KPMG ehf. Tap varð á rekstri félagsins á árinu 2020 að fjárhæð 5.482 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. b) Boðun ársfundar. Skv. samþykktum félagsins skal halda ársfund Leiguíbúðanna fyrir lok ágúst ár hvert.
a) Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir ársreikninginn samhljóða með þremur atkvæðum og staðfestir hann með undirritun sinni. Stjórnin óskar eftir að skýringar verði uppfærðar frá endurskoðanda m.t.t. athugasemda sem gerðar voru á fundinum.
b) Stjórnin samþykkir samhljóða með þremur atkvæðum að boða til ársfundar Leiguíbúðanna þann 25. ágúst 2021 kl. 17:00.
Auglýsing um ársfund samkvæmt samþykktum félagsins verði send fulltrúaráði skriflega í síðasta lagi þann 28. júlí. Í auglýsingu skal kalla eftir tillögum til breytinga á samþykktum og/eða öðrum tillögum til ársfundar.
Eftirfarandi gögn fylgi fundarboði:
Ársreikningur 2020.
Fundargerðir stjórnar frá síðasta ársfundi.
Fjárhagsáætlun næsta árs.

2.
Beiðni um skuldbreytingu
Í byrjun árs leitaði framkvæmdastjóri til Dalvíkurbyggðar og Lánasjóðs sveitarfélaga með möguleika á breytingu á lánssamningi nr. 1907_47 úr láni með jöfnum afborgunum og yfir í jafngreiðslulán.Þann 15. mars 2021 barst svar þess efnis að Lánasjóðurinn hefur mjög einfalda áhættustýringu sem felst í því að sjóðurinn lánar út eins og hann tekur að láni. Lánasjóðurinn hefur ekki heimilað skuldbreytingar á lánum. Það er því ekki möguleiki í stöðunni að fá láninu breytt hjá Lánasjóðnum úr jöfnum afborgunum og yfir í jafngreiðslulán.
Lagt fram til kynningar.
3.
Lokastígur - staða mála
Frá því íbúðirnar í Lokastíg voru teknar í notkun í apríl 2020 hefur aðeins þurft að kosta til lagfæringa. Stærsti liðurinn er vegna pípulagna og klósettskipta í íbúðum, heildarkostnaður tæplega 382 þúsund krónur. Fyrir liggur kostnaður vegna festinga á ruslatunnum, um 240.000 kr. Aðrar minni lagfæringar eru óverulegar kostnaðarlega séð. Kostnaður vegna þessa hefur verið greiddur úr viðhaldssjóði.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fjárhagsáætlun 2020, 2021 og næstu ára
Framkvæmdastjóri lagði fram gögn varðandi fjárhagsáætlun 2021 og 2022. Byggt er á rauntölum ársins 2020. Greiðslur leigjenda í hússjóð eru ekki nægar til að standa undir kostnaði sjóðsins. Tap hússjóðs er fært til gjalda hjá leigufélaginu. Greiðslur í viðhaldssjóð eru á bankareikningi félagsins.Fyrir liggur viðskiptaskuld við Dalvíkurbyggð frá framkvæmdatíma. Fyrir liggur samþykkt byggðaráðs um skammtímalán vegna skuldarinnar.
Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fjárhagsáætlun 2021 og 2022.
Stjórnin samþykkir samhljóða að hækka greiðslur í hússjóð um 5.000 kr á íbúð og að aðrar leigutekjur lækki á móti. Ekki er um breytingu á heildar leigugreiðslu að ræða fyrir leigjendur.
Stjórnin samþykkir samhljóða að viðhaldssjóður verði lagður inn á sér reikning hjá viðurkenndri bankastofnun.
Stjórnin samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir við Dalvíkurbyggð að gengið verði frá viðskiptaskuld við sveitarfélagið í formi langtímaláns.