Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
57. fundur
8. desember 2020
kl.
10:00
-
11:03
í fjarfundi
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
Framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2020 og 2021
Farið yfir tillögu að fjárhagsáætlun Leiguíbúðanna fyrir árið 2021.Farið yfir fjárhagsáætlun hússjóðs fyrir árið 2021.
Stjórnin samþykkir með 3 atkvæðum fjárhagsáætlun Leiguíbúðanna fyrir árið 2021.
Stjórn samþykkir með 3 atkvæðum fjárhagsáætlun Hússjóðs Leiguíbúðanna fyrir árið 2021.
Stjórnin samþykkir að fela framkvæmdastjóra að skoða hvaða möguleikar eru í boði varðandi niðurgreiðslu útistandandi skuldar við Dalvíkurbyggð.

2.
Lokastígur - staða mála
Farið yfir þau mál sem hafa komið upp hjá leigjendum frá því í haust.Búið er að kvarta nokkrum sinnum í haust vegna stíflaðra klósetta í nyrðra húsinu.Rætt um fyrirkomulag verkbeiðna.Handbók hússins kom frá verktaka um miðjan september. Skv. upplýsingum frá Berki vinnur verktakinn betur í bókinni í vetur og nánari útfærsla því væntanleg síðar.Kvartað hefur verið yfir því að heita vatnið nái hægt upp varma í syðstu íbúðunum.
Stjórnin felur formanni að ræða við leigjendur í Lokastíg varðandi klósettmál, hitastig á vatni o.fl. mál sem upp hafa komið í haust.
Stjórnin samþykkir að verkbeiðnir vegna hvers konar viðhalds eða snjómoksturs fari frá leigjendum til forstöðumanns skammtímavistunar og þaðan til formanns stjórnar með stjórn og framkvæmdastjóra í Cc.
Stjórnin áréttar að Dalvíkurbyggð sér um snjómokstur utan lóðar, þ.e. á götu, bílastæðum og gangstétt.