Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
56. fundur
23. september 2020
kl.
14:00
-
15:25
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir, framkv.stjóri.
Dagskrá
1.
Ársfundur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2020
Lögð fram fundargerð ársfundar Leiguíbúðanna sem haldinn var í Menningarhúsinu Bergi 26. ágúst 2020.Stjórn Leiguíbúðanna var endurkjörin á ársfundinum og skiptir þannig með sér verkum:Valdís Guðbrandsdóttir, formaðurHeiða Hilmarsdóttir, varaformaðurBörkur Þór Ottósson, meðstjórnandi
Stjórnin felur framkvæmdastjóra að fylgja eftir launagreiðslum fyrir setu í fulltrúaráði skv. samþykktum ársfundar.
2.
Framkvæmdastjóri Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
Á 39. fundi stjórnar þann 10. september 2020 samþykkti stjórn samhljóða að Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, verði framkvæmdastjóri félagsins til bráðabirgða þar til ný stjórn og framkvæmdastjóri verða skipuð að framkvæmdum loknum.Til umræðu ráðning framkvæmdastjóra.
Stjórnin samþykkir að núverandi fyrirkomulag verði látið halda sér fram yfir næstu fjárhagsáætlunargerð og verði endurskoðað að því loknu.
3.
Lokastígur - staða mála
Framkvæmdastjóri upplýsti að þann 28. ágúst hefði hann sent inn beiðni um fyrsta brunabótamat á Lokastíg 3 til Þjóðskrár Íslands. Þar hafi komið fram að skipulagsgjald vegna matsins yrði 0,03% af matsverði eignarinnar. Ekki hefur komið rukkun um það gjald ennþá en það verður þá líklega til greiðslu fljótlega.Handbók hússins barst frá verktaka 16. september sl. og hefur verið send til forstöðumanns skammtímavistunar. Bókin veður send til EF deildar til upplýsinga þar sem þeir munu sjá um þjónustu við húsið.Þjónustusamningur við EF deild til umræðu.Á ársfundi var samþykkt að stjórn Leiguíbúðanna er líka stjórn húsfélagsins.
Stjórnin samþykkir að ferill máls vegna umkvartana frá leigjendum til EF-deildar verði formgerður og leigjendum ljós.