Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

54. fundur
21. ágúst 2020 kl. 10:30 - 12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Leiguíbúðanna 2019
Málsnúmer 202008035
Á fundinum var farið yfir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2019 sem fylgdi með fundarboði. Tap varð á rekstri félagsins á árinu 2019 að fjárhæð 2.745 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé félagsins í árslok nam 57.605 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Stjórnin samþykkir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2019 samhljóða með 3 atkvæðum og staðfestir hann með undirritun sinni.
2.
Tilnefning í fulltrúaráð Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
Málsnúmer 202008011
Með bréfi til byggðaráðs Dalvíkurbyggðar þann 11. ágúst 2020 var óskað eftir tilnefningu frá Dalvíkurbyggð í fulltrúaráð samkvæmt fyrirliggjandi tillögu að samþykktum félagsins, alls 4 fulltrúar frá sveitarfélaginu. Einnig tilnefna leigjendur eða fulltrúar þeirra tvo aðila í fulltrúaráð.Á fundi byggðaráðs þann 20. ágúst 2020 voru eftirtaldir skipaðir í fulltrúaráðið:Felix Rafn FelixsonHelga Íris IngólfsdóttirKristinn Bogi AntonssonSigríður Jódís GunnarsdóttirFrá leigjendum eða fulltrúum þeirra eru eftirtaldir skipaðir í fulltrúaráðið:Borghildur Freyja Rúnarsdóttir Andri Mar Flosason
Stjórn Leiguíbúðanna fagnar ofangreindri skipan í fulltrúaráð Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses.

Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir samhljóða að boða fulltrúaráðið formlega til ársfundar. Með fundarboðinu fylgi öll gögn sem taka á fyrir á ársfundinum til upplýsinga.
3.
Lokastígur - staða mála
Málsnúmer 201910102
Lagt fram til kynningar samantekt frá framkvæmdastjóra og bókara á heildarkostnaði við byggingu íbúðanna í Lokastíg samanborið við fjárhagsáætlun endurskoðaða á verktíma. Einnig upplýsingar um heildarfjármögnun verkefnisins.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ársfundur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2020
Málsnúmer 202008036
Ársfundur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses kt. 640118-2100, verður haldinn miðvikudaginn 26. ágúst 2020 kl. 17:00 í Menningarhúsinu Bergi. Auglýsing þess efnis var send á stjórn og varastjórn, leigjendur og sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar þann 11. ágúst 2020.Dagskrá ársfundar er sem hér segir: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi. 3. Breytingar á samþykktum félagsins. 4. Kosning stjórnar, þrír aðalmenn og þrír til vara. 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfyrirtækis. 7. Önnur málÓskað var eftir að tillögur til breytinga á samþykktum og/eða aðrar tillögur til ársfundar bærust formanni stjórnar eigi síðar en 16. ágúst 2020.Fyrir liggur tillaga að breytingum á samþykktum félagsins vegna fjölda í fulltrúaráði og verður hún lögð fram á ársfundinum. Einnig er tillaga frá stjórn um að kosningar í stjórn og fulltrúaráð sé til fjögurra ára í senn og fylgi kjörtímabili kjörinna fulltrúa til sveitarstjórna.Einnig verður lagt fram á ársfundinum til umræðu og staðfestingar undir liðnum önnur mál:Samþykktir fyrir húsfélagið að Lokastíg 3Starfsreglur stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður ekki farið í Lokastíg að loknum ársfundi eins og áætlað var.

Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir að í lok ársfundar verði þeir aðilar sem komu að framkvæmdinni boðaðir til samverustundar í Bergi kl. 18 með þátttakendum ársfundar.