Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
53. fundur
8. júlí 2020
kl.
08:15
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Eyrún Rafnsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Samþykktir félagsins og eftirfylgni
Samkvæmt samþykktum félagsins skal boða til ársfundar skriflega með tveggja vikna fyrirvara hið skemmsta og skal hann haldinn fyrir lok ágúst ár hvert. Tillögur til breytinga á samþykktum og/eða aðrar tillögur til ársfundar skulu berast formanni stjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fundardag og skal formaðurinn senda þær fulltrúarráðsmönnum fyrir ársfundinn. Dagskrá ársfundar samkvæmt samþykktum félagsins: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi. 3. Breytingar á samþykktum (ef við á). 4. Kosning stjórnar (á fjögurra ára fresti). 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfyrirtækis. 7. Önnur mál Fulltrúaráð skal skipað þegar stofnunin hefur hafið útleigu íbúða og samkvæmt undanþáguheimild má skipa það 6 fulltrúum þannig:4 fulltrúum frá Dalvíkurbyggð2 fulltrúum frá íbúum
Stjórn samþykkir samhljóða að boða til ársfundar Leiguíbúðanna miðvikudaginn 26. ágúst kl. 17:00.
Stjórnin samþykkir samhljóða að auglýsa ársfundinn með tveggja vikna fyrirvara og auglýsa jafnhliða eftir áhugasömum einstaklingum til að starfa í stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar og fulltrúaráði félagsins.

2.
Lokastígur - staða mála
Vigfús Sigurðsson hjá Mannvit kom inn á fundinn kl. 08:26.Jón Ingi Sveinsson frá Kötlu ehf. kom inn á fundinn kl. 09:00.Til umræðu lokafrágangur verksins. Á 52. fundi stjórnar þann 24. júní 2020 var eftirfarandi bókað:"Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda til verktaka útreikninga á kostnaði Leigufélagsins sbr. ofangreint vegna tafa á afhendingu og fá verktaka til viðræðu um lokauppgjör, sbr. tölvupóstsamskipti þann 15. og 16. apríl sl."Farið yfir útistandandi reikninga vegna aukaverka og kostnað Leigufélagsins vegna tafa á afhendingu. Jón Ingi vék af fundi kl. 09:40.Vigfús vék af fundi kl. 09:50.Til umræðu lóðahirðing, handbók hússins, umsjón með fasteignum o.fl.
Stjórn Leigufélagsins samþykkir að greiða aukaverk samkvæmt útistandandi yfirliti að upphæð kr. 6.809.138. Frá greiðslu dregst reikningur vegna rafmagns skv. verksamningi kr. 269.138. Lokagreiðsla Leiguíbúðanna til verktakans Kötlu ehf. er því 6.540.000 kr.
Stjórnin óskar eftir því að verktaki afhendi verkkaupa handbók hússins, skv. byggingareglugerð nr. 112/2012, fyrir 1. ágúst 2020.
Stjórnin samþykkir samhljóða að leita tilboða í hirðingu á lóð yfir sumartímann.
Stjórnin samþykkir samhljóða að leita til Eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar vegna samnings um umsjón með fasteignum félagsins.