Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

52. fundur
24. júní 2020 kl. 10:00 - 11:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Samþykktir félagsins og eftirfylgni
Málsnúmer 202001076
Tekið fyrir bréf frá Félagsmálaráðuneytinu dagsett 14. apríl 2020 þar sem ráðuneytið veitir undanþágu frá ákvæðum laganna um fjölda í fulltrúaráði, að gættum ákvæðum 2. mgr. 7. gr. um að lágmarki þriðjungur fulltrúa komi úr röðum leigjenda. Undanþágan gildir meðan félagið á færri en tíu íbúðir.
Lagt fram til kynningar.

Stjórnin stefnir á að halda ársfund félagsins fyrir lok ágúst n.k. og þá verði íbúðakjarninn formlega vígður.
2.
Eftirlit með framkvæmdum
Málsnúmer 201904063
Vigfús Sigurðsson hjá Mannvit kom inn á fundinn kl. 10:05.Farið yfir stöðu framkvæmda á verkstað og lokaúttekt sem fór fram í morgun. Verkið er frágengið og telst formlega úttekið og lokið.
Stjórn Leiguíbúðanna fagnar því að verkinu er formlega lokið, að framkvæmdin tókst vel og að íbúar eru hamingjusamir með sín framtíðarheimili.

Stjórnin þakkar öllum þeim sem hafa komið að framkvæmd verksins fyrir þeirra framlag.
3.
Lokastígur - staða mála
Málsnúmer 201910102
Undir þessum lið var farið yfir fyrirliggjandi aukaverksreikninga frá verktaka og greiðslustöðu við verktaka samkvæmt verksamningi.Á 51. fundi stjórnar þann 17. apríl 2020 var eftirfarandi bókað: "Til umræðu staða á málum gagnvart verktaka, dagsektir o.fl.Í fundargerð 19. verkfundar kemur fram að verktaki óskar eftir að við lokauppgjör verði fallið frá dagsektum, en á móti verði kostnaður við aukaverk felldur niður. Ósk verktaka er ekki frekar rökstudd. Málinu vísað til stjórnar LD til umfjöllunar. Fyrir liggur tölvupóstur frá verktaka dagsettur 16. apríl með áætluðum kostnaði vegna vísitölu og sökkulflísa.Stjórn telur ekki tímabært að klára þennan útreikning þar sem ennþá eru útistandandi verk vegna lóðar, sorpskýla o.fl."Farið yfir dagsektir og kostnað Leigufélagsins vegna tafa á afhendingu.Undir þessum lið var einnig rætt um fjárhagsstöðu við Dalvíkurbyggð og útistandandi stofnframlög frá Ríki sem fást greidd núna við lokaúttekt.Vigfús vék af fundi kl. 11:40.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda til verktaka útreikninga á kostnaði Leigufélagsins sbr. ofangreint vegna tafa á afhendingu og fá verktaka til viðræðu um lokauppgjör, sbr. tölvupóstsamskipti þann 15. og 16. apríl sl.

Stjórn felur framkvæmdastjóra að kalla eftir lokagreiðslu vegna stofnframlags frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.