Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

51. fundur
17. apríl 2020 kl. 13:00 - 14:32
í fjarfundi
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir Framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Eftirlit með framkvæmdum
Málsnúmer 201904063
Lögð fram til kynningar dagbók eftirlitsaðila Kristjáns E. Hjartarsonar fyrir marsmánuð.Lögð fram til kynningar fundargerð 19. verkfundar.Nokkur verk eru enn ófrágengin s.s. handklæðaofnar í íbúðir í syðra húsi og skammtímavistun. Uppþvottavélar eru í of stóru bili og þarf að finna lausn til að leysa það, annað hvort með kappa uppi eða sökkli. Bilið myndast þar sem innréttingar eru staðsettar lítillega of hátt. Verktaka er falið að leysa þetta mál.Það vantar klósettrúlluhaldara og snaga undir handklæði á salerni, Börkur leysir með EF-deild og Ágústi.Húsnúmer eru ennþá í vinnslu en að öllum líkindum mun því verða reddað í samvinnu við Sæplast, Valdís fylgir eftir.Sorpskýlin, fyrir liggur tillaga frá Form um staðsetningu. Tillaga Nr. 1 dags. 17.04.2020.
Stjórnin samþykkir að fela framkvæmdastjóra að ræða við eftirlitsaðila um verklok.


Stjórnin samþykkir að sorpskýli verði staðsett á nyrsta bílastæðinu og sé samkvæmt teikningu Nr. 1 frá Form dags. 17.04.2020. Ágústi falið að reikna út mismun á teikningum og núverandi hönnun.

Stjórnin samþykkir aukaverk, að lögð verði ný stétt framan við íbúð B samkvæmt teikningu Nr. 1 frá Form dags. 17.04.2020. Ekki verði settur upp skjólveggur framan við b. Ágústi falið að reikna út mismun þessa.

Stjórnin felur verktaka að setja upp handklæðaofna þar sem þá vantar skv. fyrirliggjandi teikningum.

Stjórnin felur verktaka að lagfæra bil þar sem eru uppþvottavélar.

Leigufélagið setur ekki upp snúrustaura við hús.

Lóð afhendist þökulögð samkvæmt hönnun Ágústs Hafsteinssonar, frávik er samþykkt stétt framan við íbúð B skv. ofangreindu.
2.
Lokastígur - staða mála
Málsnúmer 201910102
Til umræðu staða á málum gagnvart verktaka, dagsektir o.fl.Í fundargerð 19. verkfundar kemur fram að verktaki óskar eftir að við lokauppgjör verði fallið frá dagsektum, en á móti því verði kostnaður við aukaverk felldur niður. Ósk verktaka er ekki frekar rökstudd. Málinu vísað til stjórnar LD til umfjöllunar. Fyrir liggur tölvupóstur frá verktaka dagsettur 16. apríl með áætluðum kostnaði vegna vísitölu og sökkulflísa.
Stjórn telur ekki tímabært að klára þennan útreikning þar sem ennþá eru útistandandi verk vegna lóðar, sorpskýla o.fl.
3.
Starfsreglur stjórnar Leiguíbúðanna
Málsnúmer 202003042
Með fundarboði fylgdu drög að starfsreglum stjórnar Leiguíbúðanna.Bætt verði við að störf stjórnar húsfélags geti fallið undir störf stjórnar sbr. drög að samþykktum fyrir húsfélagið.
Stjórnin samþykkir drögin með áorðnum breytingum og vísar þeim til umfjöllunar og staðfestingar á ársfundi félagsins.
4.
Húsfélag og hússjóður
Málsnúmer 202004050
Með fundarboði fylgdu drög að samþykktum fyrir húsfélagið að Lokastíg 3.
Stjórnin samþykkir drögin og vísar þeim til umfjöllunar og staðfestingar á ársfundi félagsins.
5.
Samþykktir félagsins og eftirfylgni
Málsnúmer 202001076
Ekki hefur enn borist svar frá HMS vegna fjölda í fulltrúaráð.
Lagt fram til kynningar.