Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
50. fundur
25. mars 2020
kl.
10:00
-
11:48
utan húss
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
Framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Eftirlit með framkvæmdum
Farið yfir stöðu á framkvæmdum á verkstað. Börkur upplýsti um að öryggisúttekt fór fram í norðurhúsi þriðjudaginn 24. mars. Viðstaddir Ágúst Hafsteinsson frá Form, Vigfús frá Mannvit, Kristján Hjartarsson og Vilhelm slökkviliðsstjóri. Viðstaddir einnig Elías frá Kötlu og Gunnar Valur frá Rafeyri. Börkur fylgir eftir þeim athugasemdum sem gerðar voru.Börkur fór yfir skipulag vegna brunavarna og nauðsynlegan búnað sem þarf að kaupa til að uppfylla allar öryggisskyldur hvað varðar brunavarnir. Einnig rætt um nettengingu inn í húsið. Börkur skoðar þetta áfram.Rætt um skráningu í fasteignaskrá. Tryggja verður að íbúar eigi allan rétt til húsaleigubóta. Eyrún og Börkur skoða þetta áfram.Rætt um fyrirkomulag sorpmála, að hagkvæmara verði að hafa eitt sorpgerði fyrir kjarnann heldur en ruslatunnur við hverja íbúð. Börkur skoðar þetta áfram.
Ekkert bókað undir þessum lið.
2.
Lokastígur - staða mála
Svör frá Kötlu um afhendingatíma suðurhúss. Ekki eru komin formleg svör en við gerum ráð fyrir því að húsin verði afhent frá verktaka fyrir páska.Ákvörðun um afhendingu til íbúanna. Ekki verður formleg opnun íbúðakjarnans fyrr en að samkomubanni vegna covid-19 verður aflétt. Félagsþjónustan er líka skert vegna covid-19 þannig að íbúar munu ekki fá þjónustu fyrr en eftir páska. Nauðsynlegt að þær upplýsingar til íbúa og aðstandenda séu á hreinu og sé komið skilmerkilega til skila þó svo að íbúar fái lykla til að flytja inn.
Stjórnin samþykkir samhljóða að leigjendur fái íbúðirnar afhentar um leið og þær eru fullbúnar, fyrir páska.
Valdís, Eyrún og Katrín vinna saman upplýsingarbréf til íbúa og aðstandenda varðandi fyrirkomulag afhendingar og þjónustu.
Valdís, Eyrún og Katrín vinna saman upplýsingarbréf til íbúa og aðstandenda varðandi fyrirkomulag afhendingar og þjónustu.
3.
Fjárhagsáætlun 2020 og 2021
Farið yfir fjárhagsáætlun 2020 og 2021 og gerðar athugasemdir. Katrín fer í að reikna upp m.v. ábendingar sem komu fram á fundinum. Ákvörðun um leiguverð. Leiguverð ætti að liggja fyrir þegar upplýsingabréf til íbúa og aðstandenda liggur fyrir.
Ekkert bókað undir þessum lið.
4.
Samþykktir félagsins og eftirfylgni
Fjöldi í fulltrúaráði, hugmyndir um fækkun úr tólf í sex fulltrúa. Í dag bárust svör frá Félagsmálaráðuneytinu um að koma þurfi formlega skrifleg beiðni frá húsnæðissjálfseignarstofnuninni til ráðuneytisins um að fá undanþágu frá 7. gr. laga um almennar íbúðir varðandi fjölda manna í fulltrúaráði. Í beiðninni skal koma fram fjöldi íbúða stofnunarinnar og af hverju óskað er eftir undanþágu frá lögunum. Slík beiðni getur verið send rafrænt t.d. á pdf-formi.Stjórnin fór yfir endurskoðaðar samþykktir hvað þetta varðar.
Stjórnin felur framkvæmdastjóra að senda inn formlegt erindi til Félagsmálaráðuneytisins vegna nauðsynlegra breytinga á samþykktum félagsins.
Stjórnin stefnir á að skipa í fulltrúaráðið á næsta fundi stjórnar.
Stjórnin stefnir á að skipa í fulltrúaráðið á næsta fundi stjórnar.