Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
49. fundur
10. mars 2020
kl.
09:15
-
10:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Eftirlit með framkvæmdum
Lögð fram til kynningar fundargerð 18. verkfundar frá 27. febrúar 2020.Lögð fram til kynningar dagbók Kristjáns E. Hjartarsonar, eftirlitsaðila, frá febrúar 2020.Farið yfir stöðu á framkvæmdum á verkstað. Rætt um aukaverk sem hafa komið upp frá síðasta fundi.a) Rafmagn, úrdráttarmælir í hverja íbúð, áætlaður kostnaður er 22.000 kr. á íbúð m.vsk. auk verktakaálags.b) Sérlitir í hverja íbúð. Áætlaður kostnaður 286.000 m.vsk, ekkert verktakaálag.
a) Stjórnin samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að settur verið sér úrdráttarmælir fyrir hverja íbúð, heildarkostnaður 193.600 m.vsk með verktakaálagi.
b) Stjórnin samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að taka tilboði Betri fagmanna ehf. upp á 286.000 m.vsk vegna sérlita í hverja íbúð, ekkert verktakaálag.
b) Stjórnin samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að taka tilboði Betri fagmanna ehf. upp á 286.000 m.vsk vegna sérlita í hverja íbúð, ekkert verktakaálag.
2.
Lokastígur - staða mála
Stjórnarformaður sendi tölvupóst á verktaka 3. mars, ítrekun um að húsunum verði skilað um næstu mánaðarmót. Svör áttu að berast 5. mars. Enn hafa ekki borist fullnægjandi svör um afhendingartíma.
Stjórnin felur formanni að ganga eftir svörum í dag. Mjög áríðandi er að húsin verði afhent um mánaðarmótin mars-apríl nk.
Áfram verður unnið í formlegri opnun íbúðakjarnans á milli funda.
Áfram verður unnið í formlegri opnun íbúðakjarnans á milli funda.
3.
Framkvæmdastjóri Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
Þann 28. febrúar 2020 var gengið frá skráningu á raunverulegum eigendum Leiguíbúðanna á RSK.is.
Stjórnin staðfestir samhljóða með 3 atkvæðum að framkvæmdastjóri og prókúruhafi Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses er Katrín Sigurjónsdóttir kt. 070268-2999.
Staðfest með undirritun allra stjórnarmanna á eyðublað RSK 17.43. Framkvæmdastjóra falið að senda tilkynninguna inn til RSK innan mánaðar frá fundi.
Staðfest með undirritun allra stjórnarmanna á eyðublað RSK 17.43. Framkvæmdastjóra falið að senda tilkynninguna inn til RSK innan mánaðar frá fundi.
4.
Þjónustusamningur við Dalvíkurbyggð
Lagður fram þjónustusamningur við Dalvíkurbyggð vegna umsýslu Leiguíbúðanna.
Stjórnin samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi þjónustusamning við Dalvíkurbyggð, undirritað á fundinum.
5.
Vinnslusamningur við Dalvíkurbyggð
Lagður fram samningur milli Leiguíbúðanna og Dalvíkurbyggðar um vinnslu persónuupplýsinga, vinnslusamningur.
Stjórnin samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi vinnslusamning við Dalvíkurbyggð, undirritað á fundinum.
6.
Lánssamningur við Dalvíkurbyggð
Lagður fram lánssamningur á milli Dalvíkurbyggðar og Leiguíbúðanna vegna láns að upphæð 162 miljónir króna. Lánið var hafið í júlí 2019 en eftir var að ganga skriflega frá samningi.
Stjórnin samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi lánssamning við Dalvíkurbyggð og felur stjórnarformanni að undirrita samninginn fyrir hönd félagsins.
7.
Viðhaldssjóður
Með fundarboði fylgdu upplýsingar frá Landsbankanum, þar gildir vaxtatafla bankans.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fjárhagsáætlun 2020 og 2021
Kynnt drög að fjárhagsáætlun og leiguverðsútreikningum. Ennþá vantar lokagögn frá KPMG og greiðsludreifingu á láninu.
Stjórnin felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram og skoða með endurskoðanda að skilmálar í 8. grein stofnsamnings séu uppfylltir.