Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

48. fundur
12. febrúar 2020 kl. 13:00 - 15:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir Framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Samþykktir félagsins og eftirfylgni
Málsnúmer 202001076
Þar sem nú hyllir undir lok framkvæmda var farið yfir samþykktir Leiguíbúðanna.Samkvæmt 5. grein samþykktanna skal skipa 12 manna fulltrúaráð til fjögurra ára í senn. Átta skulu tilnefndir af stofnaðilanum Dalvíkurbyggð og fjórir úr hópi leigjenda sé þess kostur. Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða skal fulltrúaráðið ekki skipað fyrr en stofnunin hefur hafið útleigu, en þá fyrst er hægt að tilnefna fulltrúa leigjenda.Stjórn skal skipuð þremur mönnum og jafn mörgum til vara. Núverandi stjórn skal starfa þar til fyrsti ársfundur fulltrúaráðs hefur kosið stjórn.Stjórnin fór yfir samþykktirnar í heild sinni.
Stjórnin samþykkir að fela framkvæmdastjóra að leita eftir því við Íbúðalánasjóð hvort hægt sé að fækka fulltrúum í fulltrúaráði með tilliti til stærðar einingarinnar.

Stjórnin stefnir á að skipa í fulltrúaráðið á næsta fundi stjórnar.

Stjórnin felur framkvæmdastjóra að vinna drög að starfsreglum stjórnar samkvæmt 8. grein.

Stjórnin felur framkvæmdastjóra að stofna viðhaldssjóð hjá Landsbanka Íslands samkvæmt 10. grein.

Stjórnin samþykkir að útbúið verði fréttabréf til kynningar á stöðu mála samkvæmt 14. grein.
2.
Lokastígur - staða mála
Málsnúmer 201910102
Samkvæmt 10. gr. í verksamningi við Kötlu ehf. á verktaki að greiða allan rafmagns- og hitunarkostnað af byggingum á verktíma, utan tengigjalda.Áætlaður afhendingartími er mánaðamótin febrúar/mars á norðurhúsinu en mánaðarmótin mars/apríl á suðurhúsinu. Rætt um að gott væri að fá norðurhúsið afhent fyrr til að standsetja skammtímavistun áður en íbúar flytja í sínar íbúðir sem yrði þá um mánaðarmótin mars/apríl.Umræður um leiguverð. Leiguverð byggir á lokakostnaði framkvæmda og því er ekki hægt að reikna það endanlega út fyrr en síðar. Með fundarboði fylgdu útreikningar sem fyrir liggja, fjármögnun, greiðslur frá félaginu út janúar 2020 og fleiri gögn. Með fundarboði fylgdu drög að lánssamningi við Dalvíkurbyggð og drög að þjónustusamningi um bókhald og launavinnslu við Dalvíkurbyggð.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda reikning á verktaka fyrir rafmagnskostnaði skv. 10.grein verksamnings.

Stjórnin felur framkvæmdastjóra að vinna áfram í útreikningi á leiguupphæðum og fjárhagsáætlun fyrir Leiguíbúðirnar fyrir árin 2020 og 2021 og leggja fram á næsta stjórnarfundi.

Stjórnin felur framkvæmdastjóra að fullgera lánssamning og þjónustusamning miðað við ábendingar á fundinum og leggja fram á næsta stjórnarfundi.

Stjórnin samþykkir að vinna að útfærslu á formlegri opnun íbúðakjarnans á milli funda.
3.
Eftirlit með framkvæmdum
Málsnúmer 201904063
Undir þessum lið kom Kristján E. Hjartarson á fundinn kl 13:47.Lögð fram til kynningar dagbók Kristjáns E. Hjartarsonar, eftirlitsaðila, fyrir janúar 2020.Lögð fram til kynningar verkfundargerð nr. 17 frá 10. febrúar 2020.Farið yfir stöðu á framkvæmdum á verkstað.Jón Ingi Sveinsson frá Kötlu ehf. kom á fundinn kl. 14:06.Farið yfir atriði sem út af standa og þarf að taka ákvarðanir um. Rætt var um stærð vaska og vaskaskápa á baðherbergjum, stærð og gerð fataskáps í herbergi í skammtímavistun, sturtuhengi á baðherbergi í skammtímavistun o.fl. Engin ágreiningsmál eru uppi á milli verkkaupa og verktaka.Þórhalla Karlsdóttir kom á fundinn kl. 14:30.Farið yfir atriði sem snúa að skammtímavistun o.fl.Kristján, Jón Ingi og Þórhalla viku af fundi kl. 14:50.
Stjórnin samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að settar verði sökkulflísar á forstofur og baðherbergi. Verktaki leggi fram endanlegan kostnað við þetta aukaverk.

Stjórnin ítrekar að einungis verði rafdrifin opnun á einni útihurð í hvorri íbúð í norðurhúsi.

Stjórnin ítrekar að sett verði opnunarhandföng á rennihurðir á skápum til að auðvelda notkun.

Að loknum fundi var farið á verkstað í Lokastíg og staða verksins tekin út.