Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
47. fundur
29. janúar 2020
kl.
13:00
-
14:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
Ágúst Hafsteinsson, arkitekt og Vigfús Sigurðsson hjá Mannvit komu á fund stjórnar kl. 13:00.Farið yfir til upprifjunar fundargerð frá 46. fundi stjórnar þann 4. desember 2019, 1. liður, aukaverk.
Stjórnin samþykkir að ekki verði sett hitalögn í stétt við gönguleið og svalarhurð í norðurhúsi og að pláss fyrir þvottavélar verði ekki í geymslu heldur á baði. Þetta er leiðrétting á fyrri samþykkt stjórnar frá 46. fundi.
2.
Eftirlit með framkvæmdum
Lögð fram til kynningar dagbók Kristjáns E. Hjartarsonar, eftirlitsaðila, fyrir desember 2019. Lagðar fram til kynningar verkfundagerðir:Fundur 15 frá 19. desember 2019.Fundur 16 frá 16. janúar 2020.Samantekt Kötlu ehf vegna Lokastígs 3-17 - samskipti og saga, frá 1. des. 2019 - skoðuð í ljósi síðustu fundargerðar um aukaverk. Farið yfir stöðu mála síðan þá.
Stjórn samþykkir aukaverk: Lúgur settar í loft samkvæmt samþykkt stjórnar. Samþykkt kostnaður 832.000 kr í heild.
Stjórnin telur sig hafa tekið afstöðu til allra krafna um aukaverk.
Stjórn samþykkir að endurnýja samning við eftirlitsaðila til verkloka.
Stjórnin telur sig hafa tekið afstöðu til allra krafna um aukaverk.
Stjórn samþykkir að endurnýja samning við eftirlitsaðila til verkloka.
3.
Lokastígur - staða mála
Samkvæmt 4.grein í verksamningi við Kötlu ehf. er tilboðsupphæðin tengd BVT m.v. 1. janúar 2019. Þann 21. janúar 2020 sendi Katla reikning á Leiguíbúðirnar, uppreikning verðbóta samnings til áramóta. Heildarupphæð reiknings kr. 4.515.882 m.VSK, þar af 34,2% reiknings vegna vinnu á byggingarstað.Farið yfir stöðu verks, afhendingu o.fl. rætt.Ágúst og Vigfús viku af fundi kl. 14:18.
Stjórn samþykkir reikning Kötlu dags. 31.12.2019 vegna verðbóta skv. 4. grein verksamnings.
Verkfundur sem átti að vera í þessari viku hefur verið frestað til loka næstu viku.
Stjórnin óskar eftir því að á þeim verkfundi liggi fyrir afhendingardagur íbúðanna af hálfu verkkaupa.
Verkfundur sem átti að vera í þessari viku hefur verið frestað til loka næstu viku.
Stjórnin óskar eftir því að á þeim verkfundi liggi fyrir afhendingardagur íbúðanna af hálfu verkkaupa.