Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
46. fundur
4. desember 2019
kl.
10:15
-
12:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Eftirlit með framkvæmdum
Ágúst Hafsteinsson arkitekt kom á fundinn kl. 10:15.Eyrún Rafnsdóttir og Þórhalla Karlsdóttir frá félagsþjónustunni komu á fundinn kl. 10:15.Lögð fram fundargerð frá fundi með arkitekt, verkkaupa og verktaka þann 19. nóvember sl. vegna raflagnamála, öryggiskerfis o.fl. Einnig lagt fram verðtilboð Kötlu/Rafeyri í neyðarljós, brunakerfi, neyðarlýsingu og rafdrifnar hurðir með 10% álagi samkvæmt verksamningi Leigufélags Dalvíkurbyggðar við Kötlu um byggingu og fullnaðarfrágang Lokastígs 3-17 á Dalvík.Innréttingar, lagðar fram hugmyndir Kötlu ehf. vegna innréttinga sem munu koma frá IKEA.Eyrún og Þórhalla viku af fundi kl. 11:35.Aukaverk. Lögð fram samantekt frá Kötlu ehf. vegna beiðnar um aukaverk dagsett 27. nóvember 2019.Lögð fram gögn frá Form, ÁH arkitekt, sem lágu fyrir í júlí 2018, áður en tilboð voru send í húsin. Einnig farið yfir skyggnilýsingu frá arkitekt hússins með ýmsum gögnum sem tilheyra verkinu svo sem skilalýsingu og fyrirspurnir verktaka.Lögð fram til kynningar dagbók Kristjáns E. Hjartarsonar, eftirlitsaðila, fyrir október og nóvember 2019.Ágúst vék af fundi kl. 12:35.
Stjórnin samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum eftirfarandi aukaverk:
Að aðkoma að svalarhurð í norðurhúsi verði þannig að gönguleið frá aðalinngangi að svalahurð og svæði framan við hurð verði steypt og með hitalögnum.
Að hurðir í aðalinngöngum í tveimur íbúðum í norðurhúsi verði með rafdrifnum opnunarbúnaði og fengið verði tilboð í þann kostnað.
Að sett verði upp neyðarlýsing í skammtímavistun í norðurhúsi.
Að sett verði brunakerfi í norðurhúsið og samtenging við brunakerfi í syðra húsi, ein brunastöð fyrir bæði húsin. Alls áætlaður kostnaður um 1,2 milj kr.
Að settar séu span hellur í öll eldhús.
Að heildarfermetrafjöldi viðbótar veggjaflísa sé 30 fermetrar skv. útreikningum frá hönnunarstjóra hússins.
Baðherbergi í íbúðum: Settir verði speglaskápar ofan við vaska og hár tvískiptur skápur þar sem gert er ráð fyrir þvottavél á baði. Þvottavél verði í geymslu. Ef hægt er að koma fyrir breiðari vaskaeiningu á baði þá sé það gert. ATH - gert sé ráð fyrir skápaeiningu og speglaskáp á baðherbergi í skammtímavistun.
Starfsmannaaðstaða A - gert verði ráð fyrir læstum hirslum fyrir starfsmenn en að öðru leyti skoði Eyrún og Tóta fyrirkomulag eininga miðað við áætlaða þörf.
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna eftirfarandi aukaverkum:
Ekki verði breytt læsingum á hurðum miðað við það sem áður var ákveðið og liggur fyrir. Berki og Ágústi falið að skoða þær innihurðir sem komnar eru á staðinn.
Í skilalýsingu með verksamningi undirrituðum 15. febrúar 2019 eru parketflísar á öllum gólfum.
Í gögnum sem verktaka bárust 12. júlí 2018 voru gluggar yfir skyggni á vesturhlið suðurhúss.
Allur kostnaður við loftræstingu er inni í skilalýsingu með verksamningi.
Ekki eru á teikningum önnur ljós en gert var ráð fyrir í skilalýsingu og koma fram í samningsgögnum.
Stjórnin getur ekki tekið afstöðu til annarra aukaverka vegna skorts á upplýsingum.

2.
Ósk um aðgang að fundargerðum
Tekið fyrir beiðni frá Hafþóri Gunnarssyni dagsett 27. nóvember 2019 þar sem hann óskar eftir því að fá aðgang að öllum fundargerðum stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses.
Þar sem Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses er húsnæðissjálfseignastofnun fellur hún ekki undir upplýsingaskyldu um birtingar á gögnum. Bent er á að fundargerðir hafa verið til kynningar undir fundargerðum sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar og eiga að vera aðgengilegar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.