Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

43. fundur
31. október 2019 kl. 12:30 - 13:36
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Lokastígur - staða mála
Málsnúmer 201910102
Ásgeir Örn Blöndal, lögmaður hjá PACTA lögmönnum, sat fundinn undir þessum lið.Á 42. fundi stjórnar þann 30. október 2019 var eftirfarandi bókað:"Stjórn fór yfir stöðu félagsins, gagnvart verksamningnum og stöðu framkvæmda, einnig gagnvart skuldbindingum félagsins, skjólstæðingum, lánafyrirgreiðslu o.fl. Stjórn leiguíbúðanna samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela framkvæmdastjóra að fara yfir stöðu félagsins og ábyrgðaryfirlýsingu Landsbankans með lögfræðingi í dag og skýra þannig stöðu málsins."Stjórn fór yfir stöðu málsins með lögfræðingi og málin rædd.
Stjórn leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses., samþykkir samhljóða að senda verktaka bréf með áskorun um að efna verksamning dags. 15. febrúar 2019.