Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

42. fundur
30. október 2019 kl. 10:15 - 12:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Lokastígur - staða mála
Málsnúmer 201910102
Vigfús Sigurðsson frá Mannvit sat fundinn undir þessum lið.Á 41. fundi stjórnar leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses, þann 23. október 2019, var eftirfarandi bókað:"Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses lýsir yfir áhyggjum sínum með verkstöðu framkvæmda í Lokastíg og skorar á verktaka að skila inn ítarlegri verkáætlun yfir verkið til loka framkvæmda. Óskað er eftir að verkáætlun verði tilbúin innan viku, þ.e. þriðjudaginn 29. október nk. Stjórn félagsins vill árétta tjón þess, vegna tafa á afhendingu verksins og gerir verktaka alfarið ábyrgan fyrir því tjóni sem félagið hefur orðið fyrir."Jón Ingi Sveinsson og Sveinn Elías Jónsson frá Kötlu ehf. mættu á fundinn kl. 10:30.Farið yfir gögn sem Katla ehf. leggur fram, uppfærða verkáætlun og kostnaðaráætlun Kötlu ehf.á útistandandi verkþáttum.Jón Ingi og Sveinn Elías viku af fundi að loknum viðræðum kl. 11:42.Stjórn fór yfir stöðu félagsins, gagnvart verksamningnum og stöðu framkvæmda, einnig gagnvart skuldbindingum félagsins, skjólstæðingum, lánafyrirgreiðslu o.fl.
Stjórn leiguíbúðanna samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela framkvæmdastjóra að fara yfir stöðu félagsins og ábyrgðaryfirlýsingu Landsbankans með lögfræðingi í dag og skýra þannig stöðu málsins.