Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
41. fundur
23. október 2019
kl.
10:15
-
11:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Lokastígur - staða mála
Undir þessum lið mættu á fundinn Vigfús Sigurðsson frá Mannvit og Þorsteinn Björnsson frá Dalvíkurbyggð kl. 10:00.Kristján E. Hjartarson, eftirlitsmaður á verkstað, mætti til fundarins kl. 10:40.Á 40. fundi stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses þann 16. október 2019 var eftirfarandi bókað:"Umræður um stöðu framkvæmda í Lokastíg. Undirverktaki Kötlu hefur sagt sig frá verkinu og er farinn frá því. Verkmenn frá Kötlu ehf. vinna nú að því að loka syðra húsinu. Ólíklegt er að Katla ehf. standi undir því að ljúka verkinu á grundvelli undirritaðs samnings við Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses.Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tekin verði verkstaða á verkstað í Lokastíg miðað við stöðu framkvæmda í dag. Einnig að tekin verði birgðastaða á efni sem komið er á staðinn. Skoðað verði með stöðu á pöntun á innréttingum. Í þessa úttekt fari Börkur Þór Ottósson fyrir hönd stjórnar Leiguíbúðanna, Kristján Hjartarson eftirlitsmaður á verkstað og Elías Þór Höskuldsson byggingarstjóri Kötlu ehf.Magntekin staða liggi fyrir eigi síðar en nk. þriðjudag, 22. október."Farið var yfir úttekt Barkar, Kristjáns og Elíasar. Stöðu framkvæmda, birgðastöðu og áætlun um hvað er komið og hvað vantar þ.e. stöðuskýrslu frá Kristjáni. Einnig áætlun frá Mannvit um kostnað við að ljúka verkinu.Vigfús, Þorsteinn og Kristján viku af fundi kl. 11:40.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses lýsir yfir áhyggjum sínum með verkstöðu framkvæmda í Lokastíg og skorar á verktaka að skila inn ítarlegri verkáætlun yfir verkið til loka framkvæmda. Óskað er eftir að verkáætlun verði tilbúin innan viku, þ.e. þriðjudaginn 29. október nk.
Stjórn félagsins vill árétta tjón þess, vegna tafa á afhendingu verksins og gerir verktaka alfarið ábyrgan fyrir því tjóni sem félagið hefur orðið fyrir.
Stjórn félagsins vill árétta tjón þess, vegna tafa á afhendingu verksins og gerir verktaka alfarið ábyrgan fyrir því tjóni sem félagið hefur orðið fyrir.
2.
Beiðni um upplýsingar og gögn vegna Leiguíbúða
Tekið fyrir erindi frá Elektro Co ehf. dagsett 18.10.2019, beiðni um upplýsingar um útboðsferil og verksamning sem gerður var um byggingu húsanna í Lokastíg 3-17.a) Í fyrsta lagi er óskað eftir því hvort að í útboðsferlinu hafi verið farið eftir lögum um opinber innkaup.b) Í öðru lagi er óskað eftir því hvort að í útboðsgögnum eða verksamningi sé kveðið á um keðjuábyrgð hjá verkkaupa sem í þessu tilfelli er þá Dalvíkurbyggð.Farið yfir fyrirspurnina og málið rætt.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses bendir á misskilning fyrirspyrjanda en Dalvíkurbyggð er ekki verkkaupi að þeim húseignum sem verið er að byggja í Lokastíg 3-17 heldur Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses.
Stjórn felur framkvæmdastjóra félagsins að svara erindinu í samvinnu við lögmann félagsins.
Stjórn felur framkvæmdastjóra félagsins að svara erindinu í samvinnu við lögmann félagsins.