Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

40. fundur
16. október 2019 kl. 10:15 - 12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Eftirlit með framkvæmdum
Málsnúmer 201904063
a) Lögð fram dagbók frá Kristjáni E. Hjartarsyni, eftirlitsmanni, frá framkvæmdum í september.b) Lagðar fram verkfundargerðir nr. 10 frá 12. september.nr. 11 frá 3. október.nr. 12 frá 9. október.Vigfús Sigurðsson frá Mannvit kom á fundinn kl. 10:30. Farið yfir stöðu framkvæmda á verkstað í Lokastíg.
Lagt fram til kynningar.
2.
Lokastígur - staða mála
Málsnúmer 201910102
Jón Ingi Sveinsson framkvæmdastjóri Kötlu ehf. og Sveinn Elías Jónsson sonur og ráðgjafi komu á fundinn kl. 11:00.Umræður um stöðu framkvæmda í Lokastíg. Undirverktaki Kötlu hefur sagt sig frá verkinu og er farinn frá því. Verkmenn frá Kötlu ehf. vinna nú að því að loka syðra húsinu. Ólíklegt er að Katla ehf. standi undir því að ljúka verkinu á grundvelli undirritaðs samnings við Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses.Jón Ingi og Sveinn Elías viku af fundi kl. 11:45.Málin rædd.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tekin verði verkstaða á verkstað í Lokastíg miðað við stöðu framkvæmda í dag. Einnig að tekin verði birgðastaða á efni sem komið er á staðinn. Skoðað verði með stöðu á pöntun á innréttingum. Í þessa úttekt fari Börkur Þór Ottósson fyrir hönd stjórnar Leiguíbúðanna, Kristján Hjartarson eftirlitsmaður á verkstað og Elías Þór Höskuldsson byggingarstjóri Kötlu ehf.

Magntekin staða liggi fyrir eigi síðar en nk. þriðjudag, 22. október.

Næsti fundur stjórnar verður haldinn miðvikudaginn 23. október kl. 10:15.