Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

4. fundur
9. febrúar 2018 kl. 11:00 - 12:56
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Málsnúmer 201802004
Undir þessum lið komu á fund félagsins Ágúst Hafsteinsson, frá Form ráðgjöf ehf., og Eyrún Rafnsdóttir, sviðstjóri félagsmálasviðs.Á 3. fundi stjórnar þann 2. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað:"Á áætlun er að byggja 7 íbúðir fyrir fatlað fólk í Dalvíkurbyggð. Samkvæmt bréfi frá Íbúðalánasjóði, dagsett þann 26. september 2017, liggur fyrir samþykki á stofnframlagi að upphæð kr. 56.410.248 til að byggja alls 7 íbúða búsetukjarna fyrir fatlaða. Til umræðu fyrstu skref hvað varðar m.a. hönnun á húsnæðinu.Lagt fram til kynningar."Til umræðu ofangreint.Ágúst vék af fundi kl. 12:09.Eyrún vék af fundi kl. 12:19.
Berki Þór falið að afla upplýsinga á milli funda í samræmi við umræður á fundinum.
2.
Lög um opinber innkaup og húsnæðissjálfseignarstofnanir
Málsnúmer 201802030
Samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum þá eiga lög um opinber innkaup við um húsnæðissjálfseignastofnanir.
Lagt fram til kynningar.
3.
Starfsreglur skv. 8. gr. samþykkta og ákvæðum til bráðabirgða
Málsnúmer 201802028
Samkvæmt 8. gr. Samþykkta um Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses þá á fulltrúaráð í samvinnu við stjórn að setja starfsrelgur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa stjórnar. Fram til þess tíma er fulltrúaráð hefur verið skipað skal stjórn stofnunarinnar fara með þau verkefni sem fulltrúaráði eru falin í samþykktum þessum.Formaður gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hefur aflað á milli funda um starfsreglur hses félaga.
Framkvæmdastjóra falið að afla nánari upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Velferðarráðuneytinu og Íbúðalánasjóði.
4.
Þóknun framkvæmdastjóra skv. 9. gr samþykkta og þóknun stjórnar skv. 6. gr. samþykkta.
Málsnúmer 201802029
a) Samkvæmt 9. gr Samþykkta um Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses þá ræður stjórn stofnunarinnar framkvæmdastjóra, ákveður starfskjör hans og veitir honum prókúruumboð fyrir stofnunina.Formaður gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hefur aflað á milli funda um starfskjör framkvæmdastjóra hses félaga.b) Samkvæmt 6. gr. Samþykkta um Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses þá skal á ársfundi ákveða þóknun til stjórnarmanna.Formaður gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hefur aflað á milli funda um þóknanir til stjórna hses félaga.
Lagt fram til kynningar.
5.
Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses - stofnun
Málsnúmer 201711099
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir samskiptum við Íbúðalánasjóð varðandi samning um stofnframlag. Hægt er nú að gera slíkan samning, og er hann í vinnslu hjá Íbúðalánasjóði, þar sem búið er að stofna félagið og komið er landnúmer fyrir lóðina þar sem íbúðirnar eiga að rísa.
Lagt fram til kynningar.