Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
39. fundur
10. september 2019
kl.
09:00
-
11:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
Sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Eftirlit með framkvæmdum
a) Á fundinum var farið yfir verkfundagerðir nr. 6 - 9.b) Kl. 10:00 kom inn á fundinn fulltrúi verktakans Kötlu ehf., Jón Ingi Sveinsson, framkvæmdastjóri.
a) Vegna liðar 21 í verkfundargerðum 8 og 9 óskar stjórn eftir því að fá á næsta fundi nánari skýringar frá hönnuði og eftirlitsaðila vegna magntalna.
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að litaval arkitekts hússins verði notað á milliveggi í íbúðum, sami litur á allar íbúðir.
Stjórn ítrekar að aukaverk þarf að leggja fyrir stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar til samþykktar.
b) Stjórn tekur undir bókun í lið 26 í verkfundargerð 9 og óskar eftir nýrri verkáætlun frá verkaka ásamt greiðsluáætlun vegna seinkunar framkvæmda.
Stjórn felur byggingarfulltrúa að yfirfara fyllingarefni sem notað var í aukaverk í 21. lið verkfundargerðar nr. 9.
Jón Ingi Sveinsson vék af fundi að loknum 1. lið b. kl. 10:45.

2.
Ársreikningur 2018
Á fundinum var farið yfir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2018 en hann var sendur til stjórnarmanna þann 8. júlí 2019 í rafpósti. Tap varð á rekstri félagsins á árinu 2018 að fjárhæð 316 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé félagsins í árslok nam 44.099 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Stjórnin samþykkir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2018 samhljóða með 3 atkvæðum og staðfestir hann með undirritun sinni.
3.
Framkvæmdastjóri Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
Á 23. fundi stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses, þann 23. janúar 2019, var m.a. eftirfarandi bókað:"Sveitarstjóri gerði grein fyrir að Guðrún Pálína hefur óskað eftir að losna undan hlutverki framkvæmdastjóra vegna anna í starfi. Til umræðu ofangreint og hvaða valkostir eru í stöðunni."
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leysa Guðrúnu Pálínu Jóhannsdóttur undan framkvæmdastjórn félagsins.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, verði framkvæmdastjóri félagsins til bráðabirgða þar til ný stjórn og framkvæmdastjóri verða skipuð að framkvæmdum loknum.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, verði prókúruhafi félagsins.