Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
31. fundur
2. apríl 2019
kl.
13:00
-
16:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir / Börkur Þór Ottósson
framkvæmdastjóri / aðalmaður í stjórn.
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Undir þessum lið komu á fund stjórnar Ágúst Hafsteinsson, frá Form ráðgjöf ehf., Steinþór Traustason, eftirlitsmaður frá Mannviti, Jón Ingi Sveinsson og Elís Már Höskuldsson, frá Kötlu ehf., Örn Jóhannesson og Helgi Snorrason frá Byggingafélaginu Mímir.Til umræðu m.a.:Númerabreytingar á húsum.Fundargerð frá síðasta hönnunarfundi, dagsett þann 13.03.2019Útfærsla á hönnun.Innréttingamál.Blöndunartæki.Eldavélar.Snjóbræðslukerfi.Bruna- og öryggiskerfi.Gangstétt og bílastæðamál.Inntök og lagnamál.Hugmynd verktaka um ofna í stað gólfhita í svefnherbergjum.Kostnaðaráhrif vegna mögulegra breytinga, hækkun / lækkun.Guðrún Pálína vék af fundi kl. 14:30 vegna annarra starfa.Steinþór, Helgi, Örn, Jón Ingi og Elías Már viku af fundi kl.15:15.Farið yfir þau mál og álitaefni sem til umræðu voru, m.a. lagnakjallari, og tekin saman viðbrögð stjórnar.Ágúst vék af fundi kl. 16:05.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Ágústi Hafsteinssyni, hönnunarstjóra, að taka saman niðurstöður fundarins.