Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
3. fundur
2. febrúar 2018
kl.
13:30
-
13:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses - stofnun
Á fundinum var farið yfir eftirfarandi gögn:a) Staðfestingu samþykkta fyrir Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses frá Velferðarráðuneytinu, dagsett þann 19. desember 2017.b) Vottorð úr fyrirtækjaskrá RSK um skráningu Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses, dagsett þann 24. janúar 2018.c) Upprifjun á Samþykktum fyrir Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses.
Lagt fram til kynningar.
2.
Undirbúningur framkvæmda
Á áætlun er að byggja 7 íbúðir fyrir fatlað fólk í Dalvíkurbyggð. Samkvæmt bréfi frá Íbúðalánasjóði, dagsett þann 26. september 2017, liggur fyrir samþykki á stofnframlagi að upphæð kr. 56.410.248 til að byggja alls 7 íbúða búsetukjarna fyrir fatlaða.Til umræðu fyrstu skref hvað varðar m.a. hönnun á húsnæðinu.
Lagt fram til kynningar.