Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
29. fundur
21. mars 2019
kl.
08:00
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Fyrirspurnir frá umsækjendum og aðstandendum
Tekið fyrir fyrirspurnir frá umsækjendum um leiguhúsnæði og aðstandendum þeirra er varðar ýmis mál í tengslum við húsnæðið og þjónustu, samanber rafpóstur til formanns stjórnar 20. mars 2019.Til umræðu ofangreint.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum:
a) að halda fund með umsækjendum um leiguhúsnæði og væntalegum leigjendum, aðstandendum þeirra og starfsmönnum félagsmálasviðs við fyrsta tækifæri.
b) að senda þann hluta af spurningunum er varðar þjónustu félagsmálasviðs Dalvíkurbyggðar til sviðsstjóra félagsmálasviðs.
c) að framkvæmdastjóri félagsins haldi áfram að fylla inn í skjalið svör stjórnar eftir því sem hægt er.

2.
Eftirlit með framkvæmdum
Á fundinum var farið yfir fyrirliggjandi tilboð frá Eflu hvað varðar eftirlit með framkvæmdinni, samanber rafpóstur þann 15. mars 2019.Til umræðu ofangreint.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Berki Þór að vinna áfram í málinu og fá endurskoðað tilboð frá Eflu út frá hugmyndum stjórnar sem og að afla tilboða frá fleiri aðilum.