Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
25. fundur
5. febrúar 2019
kl.
12:30
-
13:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Á fundinum var farið yfir drög að verksamningi við Kötlu ehf. og drög að skilalýsingu eftir viðbrögð Árna Pálssonar og Ágústar Hafsteinssonar við ábendingum og vangaveltum stjórnar frá fundi nr. 24.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að uppfylltu tillögum LD hses að breytingum á verksamningi og skilalýsingu og að uppfylltu öllum ákvæðum varðandi skil verktaka á þeim gögnum og upplýsingum sem vantar og gert er ráð fyrir að Katla ehf. leggi fram fyrir og/eða í síðasta lagi við undirritun samningsins þá er stjórnin tilbúin að ákveða stund og stað í samráði við verktakann varðandi undirritun á verksamningi ásamt fylgigögnum.
2.
Frá Bjarna Theódór Bjarnasyni; Lausnarbeiðni sem varamaður í stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
Tekið fyrir erindi frá Bjarna Theódór Bjarnasyni, rafpóstur dagsettur þann 31. janúar 2019, þar sem hann óskar eftir lausn frá störfum sem varamaður í stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses.Til umræðu ofangreint.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu og skipan á varamanni í stjórnina til sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar, sbr. 829. fundur byggðaráðs þann 9. ágúst 2017.