Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

24. fundur
31. janúar 2019 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Málsnúmer 201802004
Vísað er í fund stjórnar frá 23. janúar s.l. Fundur Ágústar Hafsteinssonar frá Form ráðgjöf ehf og Árna Pálssonar hjá PACTA lögmönnum með Kötlu ehf. fór fram mánudaginn 28. janúar s.l.Fyrir fundi stjórnar lágu drög að verksamningi við Kötlu ehf ásamt drögum að skilalýsingum.Á fundinum var farið yfir ofangreind gögn.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela framkvæmdastjóra að senda ofangreind drög til Árna Pálssonar og Ágúst Hafsteinssonar til skoðunar með ábendingum og vangaveltum fundarmanna.