Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

19. fundur
17. desember 2018 kl. 14:30 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Málsnúmer 201802004
Á 18. fundi stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses þann 6. desember 2018 var meðal annars eftirfarandi bókað:"Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum drög að minnispunktum til að senda Kötlu ehf. og að óska svara innan ákveðins tímafrests við þeim spurningum sem lagðar fram af stjórn í samvinnu við From Ráðgjöf ehf."Á fundinum var farið yfir þau svör sem bárust föstudaginn 14. desember s.l. ásamt drögum að verksamingi frá Kötlu ehf.
Farið var yfir þau drög sem lágu fyrir frá Kötlu ásamt því að rætt var við þau Ágúst Hafsteinsson, Guðrúnu Pálínu Jóhannsdóttur og Jón Inga Sveinsson í síma þar sem drögin voru rædd. Guðrúnu Pálínu var falið að fá álit lögmanns sveitarfélagsins á drögunum fyrir næsta fund.
Ákveðið að kalla þá Ágúst og Jón Inga til fundar fimmtudaginn 20. desember til nánari viðræðna.