Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

16. fundur
29. október 2018 kl. 14:30 - 16:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Eyrún Rafnsdóttir varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Framkvæmdastjóri / sviðsstjóri fjármála- og stjórnsyslusviðs
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Málsnúmer 201802004
Undir þessum lið kom á fund stjórnar Ágúst Hafsteinsson, frá Form ráðgjöf, kl. 14:30.Á 15. fundi stjórnar þann 27. september 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:"Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem er Katla ehf. á grundvelli tilboðs dagsettu þann 24. ágúst s.l. með fyrirvara um að forsendur tilboðsins standist og að tilboðsgjafi sé í skilum samkvæmt lögum um opinber innkaup. Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Ágústi Hafsteinssyni hjá Form ráðgjöf að ganga til samningagerðar við Kötlu ehf. og samningur verður svo til umfjöllunar og afgreiðslu í stjórn."Ágúst gerði grein fyrir þeim upplýsingum og gögnum sem hann hefur aflað frá Kötlu ehf. á milli funda varðandi ofangreint. Á fundinum voru gerðar nokkrar tillögur að breytingum á tækjalista og efnisvali.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Ágústi Hafsteinssyni hjá Form ráðgjöf áframhaldandi vinnu að samningagerð við Kötlu ehf. með því markmiði að stjórnin taki til umfjöllunar á næsta fundi drög að samningi við Kötlu ehf. um verkið.

Eyrún vék af fundi kl. 16:03.
Ágúst vék af fundi kl. 16:05.
2.
Fjármögnun framkvæmda og rekstrarform
Málsnúmer 201810099
Guðrún Pálína gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hefur aflað um möguleika á lánveitingum, t.d. frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykktir samhljóða með 2 atkvæðum að fela framkvæmdastjóra að fylgja málinu áfram eftir.