Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

13. fundur
6. júlí 2018 kl. 13:00 - 15:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Málsnúmer 201802004
Undir þessum lið kom á fundinn Ágúst Hafsteinsson, arkitekt hjá Form ráðgjöf ehf., kl. 13:00.Á 12. fundi stjórnar þann 2.júlí s.l. voru til umfjöllunar upplýsingar er varðar val á byggingarefni og byggingarleiðum við Lokastíg 3. Ágústi var falið að vinna áfram að upplýsingaöflun hvað varðar val á byggingarefni, byggingarleiðum og verktökum og stilla upp samanburði á valkostum til að leggja fyrir stjórnina.Til umræðu ofangreint.Ágúst vék af fundi kl. 14:45.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar ehf. felur Ágústi að vinna áfram að málum og fá nánari útlistanir frá mögulegum verktökum. Berki Þór er falið að afla upplýsinga hjá öðrum sveitarfélögum um efnisval. Guðrún Pálínu er falið að ítreka beiðni um upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.