Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

12. fundur
2. júlí 2018 kl. 10:30 - 12:23
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Málsnúmer 201802004
Undir þessum lið komu á fundinn Ágúst Hafsteinsson, arkitekt hjá Form ráðgjöf, og Eyrún Rafnsdóttir, sviðstjóri félagsmálasviðs, kl. 10:30.Á 11. fundi stjórnar þann 30. maí 2018 var eftirfarandi bókað:"Á 10. fundi stjórnar þann 22. maí s.l. var eftirfarandi bókað: "Á fundinum var farið yfir framvindu mála hvað varðar undirbúning framkvæmda, hönnunar og útboðs frá fundi stjórnar þann 3. maí s.l. Rætt um hvaða möguleikar eru í boði hvað varðar til dæmis val á byggingarefni, umsjón með framkvæmdinni, útboð og/eða val á verktökum. Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Berki Þór að fá nánari upplýsingar frá hönnuði um undirbúning framkvæmda hvað varðar val á byggingaefni og næstu skref. Valkostum sé stillt upp í samanburði. Einnig að unnið verði áfram að hönnunarsamningi við Form ráðgjöf ehf." Á fundinum var rætt um þær upplýsingar sem Ágúst hefur unnið að á milli funda og samanburð á byggingaleiðum. Ágúst vék af fundi kl. 15:32.Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Ágústi að vinna áfram að málinu með því markmiði að hægt verði sem fyrst að taka ákvörðun um hvaða leiðir á að fara í vali á byggingarefni og byggingarleiðum."Á fundinum kynnti Ágúst þær upplýsingar sem hann hefur aflað á milli funda hvað varðar val á byggingarefni og byggingarleiðum.Til umræðu ofangreint.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses felur Ágústi að vinna áfram að upplýsingaöflun hvað varðar val á byggingarefni, byggingarleiðum og verktökum og stilla upp samanburði á valkostum til að leggja fyrir stjórnina.
2.
Rekstur félagsins og starfsemi í Lokastíg 3
Málsnúmer 201806119
Til umræðu annars vegar starfsemi á vegum félagsmálasviðs Dalvíkurbyggðar í fasteigninni við Lokastíg 3 og starfsmannahald og hins vegar umsjón og rekstur félagsins á eigninni. Eyrún og Ágúst viku af fundi kl. 12:13.
Lagt fram til kynningar.