Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

10. fundur
22. maí 2018 kl. 14:30 - 15:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs
Málsnúmer 201805076
Tekin fyrir frétt af vef Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, dagsett þann 9. maí 2018, þar sem fram kemur að gefin hefur verið út ný reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þar er m.a. kveðið á um skilyrði þess að veittir séu styrkir til sveitarfélaga úr sjóðnum en sjóðurinn hefur það hlutverk að hafna aðstöðu sveitarfélaga við uppbyggingu eða breytingar á fasteignum sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk með miklar og7eða sértækar stuðningsþarfir. Umsóknir sveitarfélaga um styrki á þessu ári skulu hafa borist Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eigi síðar en 1. júní n.k.
Stjórnin samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela framkvæmdastjóra að afla nánari upplýsinga hjá Jöfnunarsjóði um umsóknarferli í Fasteignasjóðinn.
2.
Þóknun framkvæmdastjóra skv. 9. gr samþykkta og þóknun stjórnar skv. 6. gr. samþykkta.
Málsnúmer 201802029
Börkur Þór Ottósson kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 15:00.Á 5. fundi stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. þann 28. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað:"Á 4. fundir stjórnar þann 9. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað: "a) Samkvæmt 9. gr Samþykkta um Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses þá ræður stjórn stofnunarinnar framkvæmdastjóra, ákveður starfskjör hans og veitir honum prókúruumboð fyrir stofnunina. Formaður gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hefur aflað á milli funda um starfskjör framkvæmdastjóra hses félaga. b) Samkvæmt 6. gr. Samþykkta um Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses þá skal á ársfundi ákveða þóknun til stjórnarmanna. Formaður gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hefur aflað á milli funda um þóknanir til stjórna hses félaga. Lagt fram til kynningar." Til umræðu ofangreint. Fram kom að ekki hafa komið fram upplýsingar sem hægt er að byggja á."a) Þóknun stjórnar skv. 6. gr. samþykkta.Til umræðu.b) Þóknun framkvæmdastjóra skv. 9. gr. samþykkta.Til umræðu.
a) Þóknun stjórnar skv. 6. gr. samþykkta.

Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fundaþóknanir stjórnar verði þær sömu og hjá Dalvíkurbyggð og greitt fyrir hvern fund en ekki er um mánaðarlegar greiðslur að ræða.

b) Þóknun framkvæmdastjóra skv. 9. gr. samþykkta.

Frestað.
3.
Undirbúningur framkvæmda
Málsnúmer 201802004
Á fundinum var farið yfir framvindu mála hvað varðar undirbúning framkvæmda, hönnunar og útboðs frá fundi stjórnar þann 3. maí s.l. Rætt um hvaða möguleikar eru í boði hvað varðar til dæmis val á byggingarefni, umsjón með framkvæmdinni, útboð og/eða val á verktökum.
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Berki Þór að fá nánari upplýsingar frá hönnuði um undirbúning framkvæmda hvað varðar val á byggingaefni og næstu skref. Valkostum sé stillt upp í samanburði. Einnig að unnið verði áfram að hönnunarsamningi við Form ráðgjöf ehf.
4.
Tíma- og aðgerðaáætlun framkvæmda
Málsnúmer 201805077
Til umræðu.