Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

53. fundur
11. nóvember 2026 kl. 15:00 - 16:15
í fjarfundi
Nefndarmenn
Margrét Víkingsdóttir aðalmaður
Hrefna Katrín Björgvinsdóttir aðalmaður
Katrín Freysdóttir formaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri situr einnig fund sem embættismaður. Ave fulltrúi starfsmanna boðaði forföll og engin kom í hennar stað.
Dagskrá
1.
Endurskoðun á Reglur Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum
Málsnúmer 202512055
Sviðsstjórar fara yfir endurskoðaðar reglur varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum.
Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum endurskoðaðar reglur Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar varðandi tónlistarnemendur sem stunda nám í öðru sveitarfélagi.
2.
Jólatónleikar og heimsóknir
Málsnúmer 202512057
Stjórnendur TÁT fara yfir skipulag á tónleikahaldi um jólin og heimsóknir inn á stofnanir tengt jólunum.
Jólatónleikar verða níu þessi jólin. Tónleikar verða í kirkjum sveitar - og bæjarfélögunum. Einnig verða tónleikar í nokkrum stofnunum hjá sveitar - og bæjarfélögunum.
3.
Dagur íslenskrar tónlistar 1. desember
Málsnúmer 202611074
Dagur íslenskrar tónlistar (1.desember) er haldinn hátíðlegur ár hvert. Margir viðburðir eru haldnir í á þeim degi eða á dögum í kring um hann. Dagurinn er helgaður íslenskri tónlist og tónsmíðum. Útvarpsstöðvar eru hvattar til þess að hafa sem mest af íslenskri tónlist og sömuleiðis tónlistaráhugafólk kvatt til þess að deila íslenskri tónlist á netið. Fyrir árið 2026 var ákveðið að stefna á samsöng í sem flestum skólum og varð tillaga Soffíu Vagnsdóttur, lagið ,,Syngdu“ með Memfismafíunni fyrir valinu. Markmiðið er að sem flestir skólar á landinu taki þátt með fjöldasöng kl 10:15 þann 1.desember.
Tónlistarskólinn heldur upp á daginn með því að hefja jólatónleika röð sína.

Í Grunnskóla Fjallabyggðar verður haldið upp á daginn 2.desember í söngsal grunnskólans í starfstöðinni við Norðurgötu.
4.
Nótan 2027
Málsnúmer 202611059
Stjórnendur TÁT, fara yfir skipulag er varðar Nótuna 2027.
Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum að Tónlistarskólinn á Tröllaskaga taki þátt í Nótunni sem fram fer 11. apríl 2027.
5.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT 2026
Málsnúmer 202605010
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT, fer yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir fjárhagsárið 2026.
Lagt fram til kynningar
6.
Niðurstaða á útboði ræstinga á Sigló
Málsnúmer 202611060
Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir, sviðsstjóri fer yfir niðurstöðu á útboði vegna ræstinga á húsnæði á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar.