Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga
49. fundur
12. maí 2026
kl.
15:00
-
15:45
í fjarfundi
Nefndarmenn
Tómas Atli Einarsson
aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson
starfsmaður
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
sviðsstjóri
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Starfsmannamál hjá TÁT
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fór yfir stöðuna á starfsmannamálum fyrir næsta skólaár.
Það verður færsla á stöðugildum milli starfsmanna á haustönn, ekki er útlit á hækkun á launakostnaði.
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT lætur af störfum 31. júlí 2026.
Skólanefnd TÁT þakkar Magnúsi Guðmundi Ólafssyni fyrir vel unnin störf sem skólastjóri TÁT og óskum honum velfarnaðar.
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT lætur af störfum 31. júlí 2026.
Skólanefnd TÁT þakkar Magnúsi Guðmundi Ólafssyni fyrir vel unnin störf sem skólastjóri TÁT og óskum honum velfarnaðar.
2.
Auglýst eftir skólastjóra Tónlistarskólans á Tröllaskaga
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir stöðu mála er varðar auglýsingu á skólastjóra TÁT.
Skólanefnd TÁT samþykkir með tveimur atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar og Sviðsstjóra velferðasviðs Fjallabyggðar að vinna í málinu og endurskoða stjórnunarhlutfall miðað við nemendafjölda og stöðugildi.
3.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT 2026
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir TÁT fjárhagsárið 2026.
Lagt fram til kynningar
4.
Skólaslit og vortónleikar TÁT
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT og Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, fara yfir skipulag á vortónleikum og skólaslitum.
Lagt fram til kynningar.