Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

48. fundur
8. janúar 2026 kl. 15:00 - 16:30
í ráðhúsi Fjallabyggðar, Siglufirði
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Tómas Atli Einarsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson starfsmaður
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Styrktarsjóður TÁT
Málsnúmer 202402005
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir stöðuna á styrktarsjóði TÁT.
Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum að veita Þresti Ingvarssyni 150.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við plötuútgáfu.

Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum að veita Irenu Rut Jónsdóttir 85.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við söngnám.

Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum að endurskoða úthlutunarreglur sjóðsins.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 202505063
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fara yfir helstu atriði í fjárhagsáætlun TÁT fyrir fjárhagsárið 2026.
Lagt fram til kynningar
3.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT
Málsnúmer 201911063
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir fjárhagslegt stöðumat hjá TÁT fyrir fjárhagsárið 2025.
Lagt fram til kynningar
4.
Endurskoðun á Reglur Dalvíkurbyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum
Málsnúmer 202512055
Unnið að endurskoðun á reglum varðandi nám í tónlistarskóla fyrir utan lögheimilissveitarfélags.
Skólanefnd TÁT fela sviðsstjórum og stjórnendum TÁT að endurskoða reglurnar og koma með drög að nýjum reglum á næsta fund hjá skólanefnd TÁT.
5.
Nemendafjöldi í TÁT skólaárið 2025 - 2026
Málsnúmer 202512056
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT og Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri fara yfir nemendafjölda TÁT fyrir skólaárið 2025 - 2026.
Fjölgun er á nemendum í TÁT milli ára og því ber að fagna . Nemendur eru 167 og nokkrir í tvöföldu námi.
6.
Starfsmannamál hjá TÁT
Málsnúmer 202503112
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT og Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri, fara yfir starfsmannamál hjá TÁT.
Lagt fram til kynningar
7.
Nýtt greiðslukerfi frá Wise
Málsnúmer 202409016
Magnús Guðmundur Ólafsson,skólastjóri TÁT, fer yfir form á skólagjöldum og samstarf við WISE.
Lagt fram til kynningar.
8.
Jólatónleikar og heimsóknir
Málsnúmer 202512057
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT og Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri, fara yfir þá tónleika og heimsóknir inn á stofnanir nú í kringum jólin.
Tónlistarskólinn voru með 10. tónleika í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð í desember 2025.