Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

46. fundur
8. ágúst 2025 kl. 10:15 - 11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Tómas Atli Einarsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson starfsmaður
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 202505063
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir drög að starfs - og fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
Skólanefnd TÁT þakkar Magnúsi skólastjóra TÁT fyrir yfirferð að drögum að starfsáætlun.
2.
TÁT í upphafi skólaárs , nemendafjöldi, stundaskrár
Málsnúmer 202409017
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir skráningar og væntanlegan nemendafjölda fyrir næsta skólaár.
Skráningar í tónlistarskólann líta vel út fyrir skólaárið 2025-2026 og nemendafjöldi er svipaður og síðustu ár. Komið var inná mikilvægi þess að hafa kynningarfundi um tónlistarskólann fyrir nemendur og foreldra í grunnskólum sveitarfélagana í upphafi skólanna núna í ágúst.
3.
Starfsmannamál hjá TÁT
Málsnúmer 202503112
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir starfsmannamál hjá TÁT fyrir næsta skólaár.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT
Málsnúmer 201911063
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fara yfir fjárhagslegt stöðumat hjá TÁT 2025.
Lagt fram til kynningar
5.
Styrktarsjóður TÁT
Málsnúmer 202402005
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, kynnti styrktarsjóð fyrir nýjum aðilum.
Lagt fram til kynningar
6.
Stjórnun og tillaga að breytingu fyrir næsta skólaár
Málsnúmer 202503111
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir helstu breytingar á stjórnun hjá TÁT fyrir næsta skólaár
Lagt fram til kynningar
7.
Kostnaðarskipting sveitarfélaga vegna samrekstur á tónlistarskóla
Málsnúmer 202508003
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir kostnaðarskiptingu sveitarfélaga vegna samreksturs á tónlistarskóla.
Lagt fram til kynningar