Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

45. fundur
4. apríl 2025 kl. 08:15 - 09:35
í fjarfundi
Nefndarmenn
Tómas Atli Einarsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson starfsmaður
Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Eineltisamfélagsgerð
Málsnúmer 202409041
Formaður félagsmálaráðs hóf máls á vandamálum tengdu einelti og ofbeldi.Félagsmálaráð fagnar umræðunni og telur mikla þörf á jákvæðum samskiptum allra íbúa Dalvíkurbyggðar. Vinnuhóp farsældar barna falið að halda kynningu í farsæld barna í Dalvíkurbyggð þar sem forsendur eru að grípa á utan um börn og foreldra þeirra. Kynning á farsæld barna er á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Félagsmálaráð vekur athygli á að gulum september sem tileinkaður er geðheilbrigði og sjálfsvígforvörnum. Félagsmálaráð skorar á önnur ráð að taka umræðuna um jákvæð og uppbyggileg samskipti. Félagsmálaráð stefnir á jákvæðnis viku í Dalvíkurbyggð.
Skólanefnd TÁT tekur undir umræðu um þörf á jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð.
2.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Málsnúmer 202502075
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir TÁT fyrir fjárhagsárið 2025.
Lagt fram til kynningar.
3.
Styrktarsjóður TÁT
Málsnúmer 202402005
Tekin fyrir umsókn frá Marcel Úlf Davidsson dags. 15. jan. til að fara á píanósamkeppni EPTA í Reykjavík.
Skólanefnd TÁT samþykkir umsókn með tveimur atkvæðum en þar sem að píanókeppnin féll niður er styrkur ekki greiddur út.
4.
Skólaslit og vortónleikar TÁT
Málsnúmer 202405206
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir skipulag á skólaslitum og vortónleikum TÁT.
Lagt fram til kynningar.
5.
Starfsmannamál hjá TÁT
Málsnúmer 202503112
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir breytingar sem hafa verið á starfshlutföllum á skólaárinu 2024 - 2025.
Lagt fram til kynningar.
6.
Stjórnun og tillaga að breytingu fyrir næsta skólaár
Málsnúmer 202503111
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir tillögu á breytingu á stjórnun fyrir næsta skólaár.
Lagt fram til kynningar.
7.
Starfsáætlun TÁT 2024 - 2025
Málsnúmer 202409015
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fer yfir nemendaskrá og stundaskrár TÁT.
Skólanefnd TÁT telur mikilvægt að hafa gott samstarf milli TÁT og leik - og grunnskóla í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð.