Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

4. fundur
28. ágúst 2017 kl. 14:00 - 16:30
í Tjarnarborg, Ólafsfirði
Nefndarmenn
Hlynur Sigursveinsson sviðstjóri
Helga Helgadóttir aðalmaður
Ríkharður Sigurðsson aðalmaður
Steinunn Jóhannsdóttir formaður
Ríkey Sigurbjörnsdóttir sviðsstjóri
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson starfsmaður
Ave Kara Sillaots Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Hlynur Sigursveinsson sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Gjaldsrká og afslættir - TÁT 2017-2018
Málsnúmer 201705067
Magnús Guðmundur Ólafsson kynnti gjaldskrá Tónlistarskólans á Tröllaskaga fyrir skólaárið 2017 - 2018 og þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á henni.
Um er að ræða þrjár breytingar á núgildandi verðskrá. Það sem um ræðir er hækkun á hljóðfæraleigugjaldi úr kr. 8.597 í kr. 10.000, Kórgjald verði fellt niður og að systkinaafsláttur verði þannig að fyrsta barn greiðir fullt gjald, annað barn 80%, þriðja barn 60% og fjórða barn 40%.

Skólanefnd TÁT vísar tillögu að nýrri gjaldskrá til samþykkis í bæjarráði Fjallabyggðar og byggðaráðs Dalvíkurbyggðar.
2.
Starfsmannahald næsta skólaár og breytingar/ráðningar
Málsnúmer 201705064
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT fer yfir starfsmannamál fyrir skólaárið 2017 - 2018.
Stöðuhlutfall kennara við skólann helst óbreytt fyrir komandi skólaár.
3.
Fjárhagsáætlun (stöðuskýrsla, kjarasamningar 2017 og launaskrið
Málsnúmer 201705068
Stöðuskýrsla á rekstri TÁT fyrir tímabilið janúar 2017 til og með júlí 2017.
Lögð fram til kynningar.
4.
Reglur Dalvíkurbyggðar varandi umsókn um að stunda tónlistarnám í öðru sveitarfélagi
Málsnúmer 201708029
Reglur Dalvíkurbyggðar varðandi umsóknir um tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Frístund í Fjallabyggð 2017 - 2018
Málsnúmer 201708073
Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarsstjóri fræðslu-, frístunda-og menningarmála kynnti fyrirkomulag á starfsemi frístundar og TÁT í Fjallabyggð skólaárið 2017 - 2018.
Lagt fram til kynningar.
6.
Nýtt húsnæði TÁT á Dalvík - staðan
Málsnúmer 201705073
Magnús Guðmundur Ólafsson kynnti stöðuna á flutningi TÁT úr gamla skólanum yfir í Víkurröst.
Flutningi TÁT er lokið úr Gamla Dalvíkurskóla yfir í Víkurröst.Skólanefnd fagnar nýrri aðstöðu TÁT.