Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

27. fundur
10. september 2021 kl. 08:30 - 09:50
í fjarfundi
Nefndarmenn
Helga Helgadóttir formaður
Steinunn Jóhannsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson starfsmaður
Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT
Málsnúmer 201911063
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fór yfir sex mánaða fjárhagsstöðumat hjá TÁT fyrir fjárhagsárið 2021.
Skólanefnd TÁT óskar eftir nánari skýringum á frávikum á stöðumati sem verður sent til nefndarmanna til upplýsinga.
2.
Starfsmannasáttmáli TÁT
Málsnúmer 202001066
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, lagði fram til kynningar starfsmannasáttmála TÁT.
Lagt fram til kynningar.
3.
Launaáætlun og launakostnaður TÁT 2022
Málsnúmer 202109004
Magnús Guðmundur Ólafsson lagði fram launaáætlun fyrir TÁT fyrir fjárhagsárið 2022.
Lagt fram til kynningar.
4.
Nemendafjöldi í TÁT 2021 - 2022
Málsnúmer 202109038
Magnús Guðmundur Ólafsson fór yfir nemendafjölda TÁT fyrir skólaárið 2021 - 2022.
Nemendafjöldi hjá TÁT er 170 nemendur nú á haustönn skólaárið 2021 - 2022.
5.
Verktakasamningar vegna tónlistarkennslu í skólum Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar
Málsnúmer 202009087
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fór yfir þá verktakasamninga sem búið er að gera við leik - og grunnskóla í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
6.
Gjaldskrá TÁT 2022
Málsnúmer 202109039
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fór yfir drög að gjaldskrá TÁT fyrir fjárhagsárið 2022.
Umræða um gjaldskrá TÁT verður tekin áfram á næsta fundi skólanefndar TÁT.
7.
Starfsmannahald næsta skólaár og breytingar/ráðningar
Málsnúmer 201705064
Magnús Guðmundur Ólafsson fór yfir starfsmannamál fyrir skólaárið 2021 - 2022.
Fjöldi starfsfólks TÁT er 15 sem raðast í 10,65 stöðugildi skólaárið 2021 - 2022.
8.
Samtölur TÁT fyrir haustönn 2021
Málsnúmer 202109041
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fór yfir samtölur hjá TÁT fyrir haustönn 2021.
Lagt fram til kynningar.
9.
Starfs - og fjárhagsáætlun TÁT 2022
Málsnúmer 202109052
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fór yfir drög að starfsáætlun fyrir fjárhagsárið 2022.
Lagt fram til kynningar.
10.
Ræsting í skólahúsnæði TÁT á Siglufirði.
Málsnúmer 202104068
Tekinn til umræðu samningur um ræstingu á skólahúsnæði TÁT á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar.