Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

19. fundur
3. apríl 2020 kl. 10:00 - 11:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Helga Helgadóttir formaður
Steinunn Jóhannsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson starfsmaður
Ríkey Sigurbjörnsdóttir sviðsstjóri
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Skóladagatöl fyrir 2020 - 2021
Málsnúmer 202002018
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT fór yfir skóladagatal TÁT fyrir skólaárið 2020 - 2021.
Skóladagatal TÁT er samþykkt með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum
2.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT
Málsnúmer 201911063
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir TÁT fjárhagsárið 2020.
Lagt fram til kynningar
3.
Starfsmannamál TÁT fyrir skólaárið 2020 - 2021
Málsnúmer 202003160
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT fór yfir starfsmannamál fyrir næsta skólaár.
Lagt fram til kynningar
4.
Breytingar á kennsluháttum vegna Covid - 19
Málsnúmer 202003161
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT fór yfir breytingar á kennsluháttum vegna Covid 19.
Kennsla hefur bæði farið fram í staðnámi og í gegnum fjarfundabúnað frá 23. mars. Virkni nemenda hefur verið góð og kennsla gengið vel. Skólanefnd TÁT lýsir ánægju sinni með hvernig brugðist var við að halda uppi kennslu á þessum fordæmalausu tímum.