Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga
18. fundur
24. janúar 2020
kl.
08:45
-
10:15
í ráðhúsi Fjallabyggðar, Siglufirði
Nefndarmenn
Helga Helgadóttir
formaður
Steinunn Jóhannsdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson
starfsmaður
Ríkey Sigurbjörnsdóttir
sviðstjóri
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Starfsmannahald næsta skólaár og breytingar/ráðningar
Magnús Guðmundur Ólafsson upplýsti skólanefnd TÁT um breytingar á starfsmannamálum vegna langtímaveikinda.
Lagt fram til kynningar
2.
Ósk um launaviðauka vegna veikinda starfsmanns.
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT óskaði eftir viðauka vegna langtímaveikinda starfsmanns.
Lagt fram til kynningar
3.
Íslenskukennsla fyrir erlenda tónlistarkennara
Símey er að bjóða íslenskukennslu fyrir erlenda tónlistarkennara.
Lagt fram til kynningar. Sex erlendir tónlistarkennarar taka þátt í þessu námskeiði. Skólanefnd TÁT lýsir ánægju sinni með þetta framtak.
4.
Námskeið streituskólinn
Magnús Guðmundur Ólafsson upplýsti skólanefnd um námskeið á vegum Streituskólans sem verður í Víkurröst á Dalvík 10. febrúar.
Lagt fram til kynningar. Námskeið verður á starfsdaginn 10. febrúar.
5.
Starfsmannasáttmáli TÁT
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT fór yfir þær breytingar sem hafa verið gerðar á starfsmannasáttmála TÁT.
Endurskoðaður starfsmannasáttmáli TÁT lagður fram til kynningar.
6.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarráðs og Magnús Guðmundur Ólafsson fóru yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir fjárhagsárið 2019 og helstu breytingar í fjárhagsáætlun 2020.
Lagt fram til kynningar
7.
Viðburðir hjá TÁT 2020
Magnús Guðmundur Ólafsson upplýsti skólanefnd TÁT um viðburði á vorönn.
Lagt fram til kynningar
8.
Yfirlit yfir starfsemi TÁT 2019
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT fór yfir starfsárið 2019 hjá TÁT.
Lagt fram til kynningar