Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga
17. fundur
22. nóvember 2019
kl.
08:45
-
10:30
í Tjarnarborg, Ólafsfirði
Nefndarmenn
Helga Helgadóttir
formaður
Steinunn Jóhannsdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson
starfsmaður
Ríkey Sigurbjörnsdóttir
sviðstjóri
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarmála
Dagskrá
1.
Jólatónleikar 2019
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT fór yfir dagskrá jólatónleika hjá TÁT 2019.
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir tónleika nemenda hjá TÁT fyrir jólin.
2.
Jólarúntur tónlistarkennara
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT fór yfir dagskrá á jólarúnti tónlistarkennara í leik - og grunnskóla í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar. Skólanefnd TÁT lýsir ánægju sinni með jólarúnt kennara í leik - og grunnskóla.
3.
Námskeið streituskólinn
Magnús Guðmundur Ólafsson skólastjóri TÁT kynnti fyrir skólanefnd námskeið sem verður haldið fyrir starfsmenn TÁT 10. febrúar 2020.
Lagt fram til kynningar. Skólanefnd TÁT leggur til að samstarf við aðrar starfsstöðvar verði einnig athugað í tengslum við námskeiðið.
5.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir fjárhagslegt stöðumat hjá TÁT.
Lagt fram til kynningar. Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarmála skoðar nokkra þætti í áætlun.
6.
Uppsögn á stjórnunarhluta starfs í TÁT
Magnús Guðmundur Ólafsson fór yfir uppsögn á stjórnunarhluta starfs í TÁT.
Lagt fram til kynningar - Þorsteinn Bertu Sveinsson hefur sagt upp 30% deildastjórastöðu við TÁT frá og með 1. janúar 2020 og fer í 100% kennarastöðu frá þeim tíma. Stjórnunarstaðan verður leyst af öðrum stjórnendum TÁT fram á vor 2020 og þá verður 30% stjórnunarstaða auglýst.
7.
Kostnaðarskipting á rekstri TÁT fyrir 2019 - 2020
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarmála í Dalvíkurbyggð fór yfir kostnaðarskiptingu á rekstri TÁT fyrir skólaárið 2019 - 2020.
Lögð fram kostnaðarskipting á rekstri TÁT milli sveitarfélaganna. Skólanefnd TÁT vísar kostnaðarskiptingu til afgreiðslu í Byggðarráði Dalvíkurbyggðar og Bæjarráði Fjallabyggðar.
8.
Námsferð til Basel
Magnús skólastjóri og Ave kennari sögðu frá námsferð TÁT til Basel haustið 2019.
Lagt fram til kynningar.