Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga
1. fundur
7. október 2016
kl.
08:15
-
11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Hlynur Sigursveinsson
sviðstjóri
Helga Helgadóttir
aðalmaður
Kristinn J. Reimarsson
sviðstjóri
Steinunn Jóhannsdóttir
formaður
Hilmar Elefsen
varamaður
Starfsmenn
Magnús Guðmundur Ólafsson
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Hlynur Sigursveinsson
Dagskrá
1.
Tilnefning formanns, varaformanns og ritara
Til afgreiðslu er kosning formanns, varaformanns og ritara.
Eins og segir í 11.gr. samningsins um sameiningu Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar og Tónskóla Fjallabyggðar undir nafninu Tónlistarskólinn á Tröllaskaga er skipan skólanefndar þannig að fyrsta starfsárið skipar Dalvíkurbyggð tvo fulltrúa og Fjallabyggð 3 fulltrúa og næsta starfsár skipar Dalvíkurbyggð 3 fulltrúa og Fjallabyggð 2. Þá segir að sveitarfélag sem skipar 2 fulltrúa fái úthlutaða stöðu formanns skólanefndar og varaformaður komi frá því sveitarfélagi sem skipar 3 fulltrúa.
Í ljósi þessa hefur Dalvíkurbyggð fyrir sína hönd ákveðið að Steinunn Jóhannsdóttir verði skipuð formaður nýrrar skólanefndar.
Fjallabyggð tilnefnir Ríkharð Sigurðsson sem varaformann nýrrar skólanefndar.
Nefndarmenn voru sammála um að tilnefna Hlyn Sigursveinsson, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar sem ritara nýrrar skólanefndar.
Í ljósi þessa hefur Dalvíkurbyggð fyrir sína hönd ákveðið að Steinunn Jóhannsdóttir verði skipuð formaður nýrrar skólanefndar.
Fjallabyggð tilnefnir Ríkharð Sigurðsson sem varaformann nýrrar skólanefndar.
Nefndarmenn voru sammála um að tilnefna Hlyn Sigursveinsson, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar sem ritara nýrrar skólanefndar.
2.
Erindisbréf skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga
Fyrstu drög að erindisbréfi fyrir nýja skólanefnd Tónlistarkólans á Tröllaskaga lögð fram til kynningar og umræðu.
Nefndin fór yfir fyrirliggjandi drög og felur Kristni og Hlyn að útfæra erindisbréfið í samræmi við tillögur sem fram komu og að bréfið verði tekið til endanlegrar afgreiðslu á næsta fundi skólanefndar.
3.
Fjárhagsáætlun TÁT-2017
Fjáhagsáætlun Tónlistarskólans á Tröllaskaga (TÁT) og beiðni um nýkaup lögð fram til kynningar og umræðu.
Afgreiðslu frestað.
4.
TÁT - Starfsáætlun 2016-2017
Starfsáætlun fyrir skólaárið 2016-2017 kynnt.
Starfsáætlun lögð fram til kynningar og umræðu. Lagt til að lykiltölur verði lagaðar og afgreiðslu hennar því frestað.
5.
Reglur um hvatagreiðslur
Í fylgigögnum undir þessum lið eru lagðar fram reglur um hvatagreiðslur hjá Dalvíkurbyggð og reglur og skilyrði um frístundastyrki Fjallabyggðar. Skoða þarf hvort og þá með hvaða hætti hægt er að samræma þær.
Fram kemur verulegt ósamræmi milli upphæðar frístundastyrkja í sveitarfélögunum. Skólanefnd leggur til að embættismenn komi upplýsingum þar að lútandi á framfæri við bæjar- og byggðaráð.
6.
Greiðsluseðlar - nemendur
Kynning á fjölda skráðra nemenda í Tónlistarskólanum á Tröllaskaga (TÁT), áætlaðar tekjur TÁT vegna tónlistarkennslu, systkinaafslættir, fjárhæð frístundastyrkja sem ráðstafað er til TÁT, tekjur vegna hljóðfæraleigu og bóksölu.
Farið var yfir nemendafjölda og samróma samþykkt að senda út greiðsluseðla fyrir haustönn 2016.
7.
Starfslýsing deildarstjóra Tónlistarskólans á Tröllaskaga
Starfslýsing fyrir deildarstjóra Tónlistarskólans á Tröllaskaga lögð fram til kynningar.
Málinu frestað.
8.
Uppsögn
Lögð fram til kynningar (sjá fylgiskjal) uppsögn tónlistarkennarans Gunnars Smára Helgasonar.
Lagt hefur verið fram uppsagnarbréf Gunnars Smára Helgasonar og vill skólanefnd TAT þakka Gunnari Smára fyrir vel unnin störf.
9.
Breytingar á starfshlutfalli kennara
Magnús skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga fer yfir fyrirkomulag um starfshlutfall kennara. Engin fylgiskjöl eru með málinu.
Gunnar Smári Helgason hefur sagt upp störfum og mun Guðmann Sveinsson taka yfir hluta af hans störfum og þar með hækkar starfshlutfall Guðmanns úr 60% í 85%.
10.
Ný heimasíða Tónlistarskólans á Tröllaskaga (tat.is)
Skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga kynnir nýja heimasíðu Tónlistarskólans á Tröllaskaga - www.tat.is - engin fylgigögn eru með þessu máli.
Magnús fór yfir nýja heimasíðu og Facebook síðu(TAT).
11.
Símakostnaður stjórnenda
Til umræðu er hvernig farið verður með símakostnað stjórnenda Tónlistarskólans á Tröllaskaga. Engin fylgigögn eru með þessu máli.
Kannað verði hverjar reglur Dalvíkur- og Fjallabyggðar eru varðandi símakostnað starfsmanna.
12.
Nefndarlaun kjörinna fulltrúa
Nefndarlaun kjörinna fulltrúa lögð fram til umræðu. Engin fylgiskjöl eru með þessu máli.
Niðurstaðan er að laun einstaka fulltrúa í skólanefnd eru ákveðin hjá hvoru sveitarfélagi fyrir sig. Hvað fasta fundartíma varðar er lagt til að fundað verði síðasta föstudag í mánuði, annan hvorn mánuð, en hægt verði að kalla til aukafundar ef þörf krefur.