Skipulagsráð
42. fundur
14. janúar 2026
kl.
14:00
-
16:04
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir
formaður
Júlíus Magnússon
varamaður
Emil Júlíus Einarsson
aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
aðalmaður
Þorsteinn Ingi Ragnarsson
aðalmaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir
skipulagsfulltrúi
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Lögð fram til umræðu staða vinnu við nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Lagt fram til umræðu.
2.
Nýtt íbúðasvæði við Böggvisbraut - breyting á aðalskipulagi
Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna íbúðabyggðar vestan Böggvisbrautar lauk þann 12.janúar sl.Engar athugasemdir bárust.Umsagnir bárust frá Norðurorku, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands, Rarik, Vegagerðinni og Náttúruverndarstofnun.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Böggvisbraut - nýtt deiliskipulag
Auglýsingu tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð vestan Böggvisbrautar lauk þann 12.janúar sl. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Mílu, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og Rarik.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar vestan Böggvisbrautar skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu eftir auglýsingu að götuheitum verði bætt inn á skipulagsuppdrátt.
Skipulagsráð samþykkir að götur innan skipulagssvæðisins fái heitin Karlsrauðatorg, Ægisgata og Garðastígur.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Skipulagsráð samþykkir að götur innan skipulagssvæðisins fái heitin Karlsrauðatorg, Ægisgata og Garðastígur.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Selárland - breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar
Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, unnin af Teikna - teiknistofu arkitekta, vegna áforma um uppbyggingu afþreyingar- og ferðamannasvæðis í landi Selár við Hauganes.Kynningu á tillögu á vinnslustigi lauk þann 23.júlí sl. og bárust engar athugasemdir.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 6.júní sl.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Selárland - nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir ferðamanna- og þjónustusvæði í Selárlandi við Hauganes, unnin af teiknistofunni NordicArch. Kynningu á tillögu á vinnslustigi lauk þann 23.júlí sl. og bárust engar athugasemdir.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 6.júní sl.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Deiliskipulag Hauganess - breyting á skipulagsmörkum
Lögð fram tillaga að breyttri afmörkun deiliskipulags fyrir Hauganes í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu- og frístundabyggð við Sandvík.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hauganess og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Hesthúsasvæði Hringsholti - nýtt deiliskipulag
Kynningu á skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag hesthúsasvæðis í Hringsholti lauk þann 24.desember sl.Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Mílu, Minjastofnun Íslands, Hestamannafélaginu Hring, Rarik og Vegagerðinni.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að deiliskipulagstillögu í samvinnu við skipulagshönnuði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.
Athafnasvæði við Sandskeið - nýtt deiliskipulag
Kynningu á skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag athafnasvæðis við Sandskeið á Dalvík lauk þann 23.desember sl.Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Mílu, Minjastofnun Íslands, Rarik, framkvæmdasviði Dalvíkurbyggðar og Vegagerðinni.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að deiliskipulagstillögu í samvinnu við skipulagshönnuði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
9.
Athafnasvæði í landi Ytri Haga - nýtt deiliskipulag
Lögð fram tillaga á vinnslustigi, unnin af Eflu verkfræðistofu, að deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í landi Ytri-Haga þar sem Norðurorka hyggst byggja upp svæði til jarðhitanýtingar. Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 28.júní 2024.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
10.
Ægisgata 31 Árskógssandi - fyrirspurn um uppbyggingaráform
Lagt fram til kynningar erindi Hellings ehf. þar sem kynnt eru áform um uppbyggingu á lóðum nr. 29 og 31 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu á Árskógssandi. Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 9.apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.
11.
Dalbær - umsókn um uppsetningu hleðslustöðvar
Erindi dagsett 31.desember 2025 þar sem Elísa Rán Ingvarsdóttir f.h. Dalbæjar hjúkrunarheimilis sækir um leyfi til uppsetningar á hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla á lóð Dalbæjar.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn framkvæmdasviðs.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
12.
Íslandsmeistaramót í snocrossi 2026
Erindi dagsett 9.janúar 2026 þar sem Freyr Antonsson f.h. Miðgarðs akstursíþróttafélags og MSÍ sækir um leyfi til að halda Íslandsmeistaramót í snocrossi á Dalvík þann 31.janúar nk.Fyrirhuguð staðsetning er svæði fyrir neðan Brekkusel en til vara er sótt um svæði norðan við Samherja.Meðfylgjandi eru greinargerð og afstöðumyndir.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðs Dalvíkurbyggðar, hafnarstjóra og lóðarhafa á svæðinu auk leyfis lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
13.
Hamarslandið - skráning staðfanga
Lagt fram erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dagsett 7.febrúar 2025 þar sem farið er fram á að frístundalóðum í landi Hamars verði gefin formleg staðföng, þ.e. götuheiti og húsnúmer.
Frestað til næsta fundar.
14.
Bekkur Jóhanns Svarfdælings - færsla á Ráðhúslóð
Lögð fram til kynningar bókun menningarráðs frá 11.desember sl. varðandi staðsetningu á bekk Jóhanns Svarfdælings.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 10.desember sl. og var afgreiðslu frestað þar sem umsögn menningarráðs lá ekki fyrir.
Skipulagsráð samþykkir að minnismerkinu verði fundinn nýr staður þegar nýtt byggðasafn hefur risið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
15.
Gjaldskrár 2026
Lagt fram til kynningar minnisblað Pacta lögmanna, dagsett 11.desember sl., varðandi gjaldtöku vegna uppbyggingar á svæðum utan þéttbýlis í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
16.
Landeldi við Hauganes - tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu
Lagt fram til kynningar erindi Skipulagsstofnunar þar sem tilkynnt er um að Laxós ehf. hefur dregið til baka tilkynningu til ákvörðunar um matsskyldu á áformum um uppbyggingu landeldis norðan við Hauganes og hyggst nú fara með áformin í fullt mat á umhverfisáhrifum.
Lagt fram til kynningar.
17.
Fundargerðir byggingarfulltrúa 2025
Lögð fram til kynningar fundargerð 10. fundar dags. 19.desember 2025, með fullnaðarafgreiðslum erinda.
Lagt fram til kynningar.