Fara í efni

Skipulagsráð

3. fundur
25. október 2022 kl. 08:15 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Anna Kristín Guðmundsdóttir formaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir varaformaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Daníel Daníelsson sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Bjarni Daníel Daníelsson Sviðsstjóri Framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Gjaldskrár 2023
Málsnúmer 202208116
Gjaldskrár sem falla undir Skipulagsráð lagðar fyrir og teknar til umræðu.
Skipulagsráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum framlögð drög að gjaldskrá með viðbótum.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2023; Skipulagsráð
Málsnúmer 202210039
Starfs- og fjárhagsáætlun lögð fram til umræðu.
Skipulagsráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum framlagða starfsáætlun 2023.
Fjárhagsáætlun lögð fram til kynningar.