Skipulagsráð
16. fundur
10. janúar 2024
kl.
14:00
-
16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Júlíus Magnússon
varamaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir
varaformaður
Emil Júlíus Einarsson
aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
aðalmaður
Þorsteinn Ingi Ragnarsson
aðalmaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir
skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Dalvík miðsvæði - nýtt deiliskipulag
Ágúst Hafsteinsson hjá form ráðgjöf ehf. fór yfir tillögu að nýu deiliskipulagi íbúðar-, verslunar- og þjónustusvæðis í miðbæ Dalvíkur í kjölfar ábendinga frá fundi skipulagsráðs þann 13. desember 2023. Ágúst sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna með skipulagshönnuði að tillögu á vinnslustigi og leggja fyrir næsta fund ráðsins.
Þá leggur skipulagsráð til við sveitarstjórn að hún samþykki að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 í samræmi við tillöguna.
Þá leggur skipulagsráð til við sveitarstjórn að hún samþykki að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 í samræmi við tillöguna.
2.
Skáldalækur ytri - umsókn um deiliskipulag fyrir frístundalóðir
Á fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 18. október sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna stækkunar á frístundasvæði í landi Skáldalækjar ytri. Er nú lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir svæðið, unnin af Form ráðgjöf ehf. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun frístundasvæðis 660-F til suðurs fyrir þrjár nýjar frístundalóðir ásamt því að afmörkun svæðisins er aðlöguð að deiliskipulagsmörkum aðliggjandi lóða.Meðfylgjandi er deiliskipulagsuppdráttur.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar.
Skipulagsráð óskar eftir tillögum að götuheiti frá landeigendum.
Skipulagsráð óskar eftir tillögum að götuheiti frá landeigendum.
3.
Selárland - uppbyggingarsvæði
Frestur til að skila inn tillögum að uppbyggingu afþreyingar- og ferðamannasvæðis í landi Selár við Hauganes rann út þann 8. janúar sl. Tillaga barst frá Nordic arkitektastofu og er hún lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Hringtún 24 - umsókn um lóð
Erindi dagsett 29. desember 2023 þar sem Valgerður I. R. Guðmundsdóttir sækir um lóð nr. 24 við Hringtún.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
Vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
5.
Dalvíkurlína 2 - geymslusvæði fyrir strengkefli
Erindi dagsett 14. desember 2023 þar sem Landsnet óskar eftir geymslusvæði fyrir strengkefli í tengslum við lagningu Dalvíkurlínu 2. Sótt er um 2500 m2 svæði í námu Dalvíkurbyggðar í landi Háls til afnota árin 2024 og 2025.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.