Fara í efni

Skipulagsráð

15. fundur
13. desember 2023 kl. 14:00 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Anna Kristín Guðmundsdóttir formaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir varaformaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Grund Svarfaðardal - breyting á aðalskipulagi vegna áforma um efnisnám
Málsnúmer 202305021
Lögð fram skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um efnisnám úr Svarfaðardalsá í landi Grundar í Svarfaðardal, unnin af Teiknistofu arkitekta.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Miðsvæði Dalvíkur - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202202043
Lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi íbúðar-, verslunar- og þjónustusvæðis í miðbæ Dalvíkur, unnin af Form ráðgjöf ehf. Meðfylgjandi eru greinargerð og kynningargögn.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með skipulagshönnuði í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Böggvisbraut - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202302121
Lögð fram endurskoðuð skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag íbúðarbyggðar við Böggvisbraut, unnin af Landmótun.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn hún samþykki framlagða lýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Íbúðahverfi sunnan Dalvíkur - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202205033
Lögð fram endurskoðuð skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð sunnan Dalvíkur, unnin af Mannviti verkfræðistofu.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða lýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Árskógssandur - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202303040
Lögð fram uppfærð skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag íbúðarsvæðis á Árskógssandi, unnin af Mannviti verkfræðistofu. Deiliskipulagið kallar á breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem óbyggðu svæði er breytt í íbúðabyggð.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að hafin verði vinna við breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að láta vinna lýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu og leggja fyrir næsta fund ráðsins ásamt skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Öldugata 31, 33, 35 Árskógssandi - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 202309104
Lögð fram drög að tillögu að breytingu á deiliskipulagi atvinnu- og íbúðarsvæðis á Árskógssandi, unnin af Form ráðgjöf ehf. Breytingin gerir ráð fyrir eftirfarandi:- Lóðir nr. 31, 33 og 35 við Öldugötu verði sameinaðar í eina lóð.- Hámarksnýtingarhlutfall sameinaðrar lóðar verði 0,55 fyrir byggingar á einni hæð og 0,6 fyrir byggingar á einni hæð með millilofti eða efri hæð. - Hámarksvegghæð verði 8 m og hámarksmænishæð verði 11 m. Meðfylgjandi er deiliskipulagsuppdráttur.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samvinnu við skipulagshönnuð í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Sjávargata 6B Árskógssandi - umsókn um niðurrif og nýbyggingu á lóð
Málsnúmer 202307005
Grenndarkynningu áforma á lóð nr. 6B við Sjávargötu, Árskógssandi lauk þann 7. nóvember sl. Tvær athugasemdir bárust.
Í ljósi innkominna athugasemda leggur skipulagsráð til við sveitarstjórn að umsókn um hækkun mænishæðar í 7,4 m verði hafnað og að leyfileg hámarkshæð húss verði 6 m.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.
Böggvisbraut 14 - umsókn um lóð
Málsnúmer 202311123
Erindi dagsett 27. nóvember 2023 þar sem Ragnar Sverrisson sækir um lóð nr. 14 við Böggvisbraut.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Skipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda. Skipulagsfulltrúa falið að úthluta lóðinni.
Vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
9.
Lagning ljósleiðara á Norðausturlandi
Málsnúmer 202311136
Lagt fram til kynningar erindi Ljósleiðarans ehf. dagsett 29. nóvember 2023 þar sem kynnt eru áform um lagningu ljósleiðara á Norðausturlandi.
Lagt fram til kynningar.
10.
Dalvíkurlína 2 - umsagnarbeiðni um breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar
Málsnúmer 202311108
Erindi dagsett 15. nóvember 2023 þar sem Hörgársveit óskar eftir umsögn Dalvíkurbyggðar um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 vegna áforma um Dalvíkurlínu 2 ásamt legu reiðleiða og göngu- og hjólaleiðar.Umsagnarfrestur er veittur til 1. janúar 2024.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu. Vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
11.
Afgreiðslufundir byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202105029
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 62.fundar dagsett 7.nóvember, 63.fundar dagsett 17.nóvember og 64.fundar dagsett 1.desember 2023, með fullnaðarafgreiðslum erinda.
Lagt fram til kynningar.