Fara í efni

Menningarráð

94. fundur
31. janúar 2023 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lovísa María Sigurgeirsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
Friðrik Friðriksson aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsvið.
Dagskrá
1.
Framtíðarfyrirkomulag á rekstri og skipulagi- ósk um viðræður
Málsnúmer 202206059
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs og Björk Hólm Þorteinsdóttir, forstöðumaður safna og framkvæmdastjóri Menningarhússins Bergs, fóru yfir hvernig staðan er á vinnu við yfirfærslu á Menningarhúsi til Dalvíkurbyggðar og næstu skref.
Lagt fram til kynningar
2.
Vinnuhópur Gagarín
Málsnúmer 202301098
Björk Hólm Þorteinsdóttir, forstöðumaður safna og framkvæmdastjóri Menningarhússins Bergs, kynnti verkefnið og óskaði eftir þátttöku menningarráðs í verkefninu.
Menningarráð fagnar verkefninu. Menningarráð mætir í verkefnið 3. mars.
3.
Framtíðarsýn safna
Málsnúmer 202301129
Björk Hólm Þorteinsdóttir, forstöðumaður safna og framkvæmdastjóri Menningarhússins Bergs,kynnti menningarráði framtíðarsýn safna, sem unnin var með starfsmönnum safna.
Lagt fram til kynningar
4.
Rafræn skjalavarsla
Málsnúmer 202301121
Björk Hólm Þorteinsdóttir, forstöðumaður safna og framkvæmdastjóri Menningarhússins Bergs, yfir stöðu mála á rafrænni skjalavörslu hjá Héraðsskjalasöfnum.
Lagt fram til kynningar
5.
Þjónustukönnun bókasafnsins
Málsnúmer 202301117
Björk Hólm Þorteinsdóttir, forstöðumaður safna og framkvæmdastjóri Menningarhússins Bergs, fór yfir niðurstöður á þjónustukönnun sem lögð var fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar nú í janúar 2023.
Menningarráð leggur til að Bókasafn Dalvíkurbyggðar hafi sama opnunartíma fram til 1. júní 2023 og sumaropnun frá 10:00 - 17:00. Opnunartími verði svo endurskoðaður fyrir haustið 2023.
6.
Skýrslur - úttekt
Málsnúmer 202301122
Tekin fyrir skýrsla frá Safnaráði Íslands 2021 - 2022.Björk Hólm Þorteinsdóttir, forstöðumaður safna og framkvæmdastjóri Menningarhússins Bergs, fór yfir helstu niðurstöður úr skýrslu og næstu skref.
Lagt fram til kynningar
7.
Ástandsskoðun á byggðasafninu Hvoli
Málsnúmer 202212140
Tekin fyrir skýrsla frá Eflu dags. 15.12.2022. Óskað var eftir við Eflu að gera ástandsskoðun á húsnæði í Karlsrauðatorgi 7. (Hvoll - Byggðarsafn).Björk Hólm Þorteinsdóttir, forstöðumaður safna og framkvæmdastjóri Menningarhússins Bergs, fór yfir helstu niðurstöður úr skýrslu og næstu skref í úrbótum.
Menningarráð leggur til við sveitastjórn Dalvíkurbyggðar að finna framtíðarhúsnæði fyrir Byggðasafn Dalvíkurbyggðar sem fyrst.
9.
Ósk um endurskoðun á samningi varðandi húsnæðið Ungó og styrkveitingu frá Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202207020
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, upplýsti menningarráð um stöðu máls.
Lagt fram til kynningar
10.
Siðareglur kjörinna fulltrúa. Endurskoðun í upphafi kjörtímabils 2022-2026
Málsnúmer 202205191
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir siðareglur kjörinna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
11.
Málstefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201802007
Málstefna Dalvíkurbyggðar, lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.