Menningarráð
93. fundur
22. nóvember 2022
kl.
08:15
-
09:45
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lovísa María Sigurgeirsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
aðalmaður
Friðrik Friðriksson
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðstjóri fræðslu- og menningarsvið
Dagskrá
1.
Gjaldskrár 2023
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna, fór yfir gjaldskrá safna fyrir fjárhagsárið 2023.
Menningarráð samþykkir samhljóða með þremur atkvæðum gjaldskrá safna, fyrir fjárhagsárið 2023.
2.
Framtíðarfyrirkomulag á rekstri og skipulagi- ósk um viðræður
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fóru yfir mögulegar breytingar á framtíðarfyrirkomulagi á rekstri Menningarhússins Berg.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fjárhagslegt stöðumat 2022(Málafl. 05)
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna, fór yfir fjárhagslegt stöðumat á söfnum í Dalvíkurbyggð, fjárhagsárið 2022.
Lagt fram til kynningar.
4.
Breyting á opnunartíma Bókasafns Dalvíkurbyggðar
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna, fór yfir það hvernig þetta fyrirkomulag hafi gengið.
Menningarráð, telur að þessi breyting á opnunartíma bókasafns hafi gengið vel. Menningarráð leggur til að þessi breyting verði til frambúðar.
5.
Menningartengt jóladagatal
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna, sagði frá Menningartengdu jóladagatali, sem gert er í samstarfi við Menningarfélagið Berg ses.
Lagt fram til kynningar. Menningarráði líst mjög vel á verkefnið.
6.
Tillaga um vinnuhóp v. vinnustofu Gagarín hönnunarstofa
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna, fór yfir hverjir sitja í vinnuhópi v. vinnustofu Gagarín hönnunarstofu. Einnig kynnti Björk verkefnið fyrir ráðinu.
Lagt fram til kynningar
7.
Ósk um styrkveitingu
Tekin fyrir umsókn um styrk frá Leikfélagi Dalvíkur dags. 15. 09. 2022.
Menningarráð, samþykkir með þremur atkvæðum að styrkja leikfélag Dalvíkur um 375.000 kr. Svigrúm er í fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2022.
8.
Ósk um endurskoðun á samningi varðandi húsnæðið Ungó og styrkveitingu frá Dalvíkurbyggð
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, upplýsti ráðið um stöðu mála varðandi húsnæðið Ungó.
Lagt fram til kynningar.