Menningarráð
92. fundur
20. september 2022
kl.
10:30
-
12:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lovísa María Sigurgeirsdóttir
formaður
Friðrik Friðriksson
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Breyting á opnunartíma Bókasafns Dalvíkurbyggðar
Tekið fyrir bréf frá Björk Hólm Þorsteinsdóttur, forstöðumanni safna dags. 25.08.2022 Tillaga um breyttan opnunartíma á Bókasafni Dalvíkurbyggðar.Einnig tekið fyrir minnsisblað frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs.
Menningarráð Dalvíkurbyggðar, samþykkir með tveimur atkvæðum nýjan opnunartíma á Bókasafni Dalvíkurbyggðar. Unnið verður eftir nýjum opnunartíma frá 3. október 2022.
2.
Mánaðarlegar skýrslur bókhalds 2022 vs. áætlun fyrir fagráð
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, og Björk Hólm, forstöðumaður safna fóru yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 05.
Lagt fram til kynningar.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026
Björk Hólm Þorsteindóttir, forstöðumaður safna fór yfir helstu áherslur í starfs- og fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024 - 2026.
Menningarráð samþykkir með tveimur atkvæðum gjaldskrá safna fyrir fjárhagsárið 2023. Gjaldskrá var hækkuð um 4,9 %. Menningarráð gerir ekki athugasemdir við starfs- og fjárhagsáætlun safna fyrir fjárhagsárið 2023.
4.
Móttaka starfsnema 2022
Tekin fyrir rafpóstur frá Pálu Hallgrímsdóttur dags. 22.05.2022.
Lagt fram til kynningar.
5.
Ósk um kaup á nýjum fjallkonubúningi
Tekin fyrir rafpóstur frá Gísla Rúnari Gylfasyni, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa dags. 20.06.2022, þar sem að hann óskar eftir að keyptur verði nýr fjallkonubúningur fyrir 17. júní 2023.
Menningaráð Dalvíkurbyggðar, samþykkir að keyptur verði nýr fjallkonubúningur, og vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir fjárhagsárið 2023.
6.
Fjárhagsáætlun 2023; beiðni um styrk vegna göngustígs meðfram kirkjugarðinum
Tekið fyrir bréf frá frá formanni sóknarnefndar Dalvíkursóknar dags. 18.06.2022. Þar sem sóknarnefnd óskar eftir styrk vegna göngustígs meðfram kirkjugarðinum.
Menningaráð Dalvíkurbyggðar, samþykkir að veita sóknarnefnd Dalvíkurkirkju 300.000 kr. styrk í verkefnið, og vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir fjárhagsárið 2023.
7.
Fjárhagsáætlun 2023 - frá Dalvíkurkirkju
Tekið fyrir bréf frá sóknarnefnd Dalvíkursóknar dags. 18.06. 2022, Þar sem óskað er eftir styrk, með niðurfellingu fasteignagjalda 2023.
Menningarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að veita sóknarnefnd Dalvíkurkirkju, styrk vegna fasteignagjalda 170.000 kr. og vísar málinu til fjárhagsáætlunagerðar 2023.
8.
Styrkbeiðni vegna heimildarmyndagerðar um Þóri Baldursson
Tekið fyrir bréf dags. júlí 2022. frá " Maðurinn sem elskar tónlist" - Fjörtiu Þúsund sjötíu og fjórir kílómetrar, ehf.
Menningarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að styrkja verkefnið um 200.000 kr. og vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir fjárhagsárið 2023.
9.
Skýrsla - reynsla og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum á Íslandi
Lagt fram til kynningar skýrsla " Reynsla og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar - og sveitastjórnum á íslandi dags. febrúar 2022. Skýrsla unnin af Ásdísi A. Arnaldsdóttur og Evu Marín Hlynsdóttur.
Lagt fram til kynningar.
10.
Erindisbréf Menningarráðs og fundaskipulag
Tekið fyrir erindisbréf Menningarráðs og fundaskipulag.
Menningarráð Dalvíkurbyggðar, samþykkir með tveimur greiddum atkvæðum fundaskipulag fyrir 2023.
11.
Framtíðarfyrirkomulag á rekstri og skipulagi- ósk um viðræður
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs fór yfir stöðuna á málinu.
Lagt fram til kynningar.
12.
Ósk um endurskoðun á samningi varðandi húsnæðið Ungó og styrkveitingu frá Dalvíkurbyggð
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs fór yfir stöðuna á málinu.
Lagt fram tiil kynningar.